
Þín orka - þinn árangur
World Class + er heilsumatseðill sem styður þín markmið og er hugsaður sem leiðarvísir fyrir alla sem mæta í World Class, óháð því hvort áherslan er á orku, jafnvægi, léttleika eða uppbyggingu.
Allur World Class + heilsuseðillinn er í boði í World Class Laugum.
World Class-a hádegi
Frá kl. 11:30-14:00
Í World Class Laugum bjóðum við upp á rétt dagsins alla virka daga og laugardaga frá kl. 11:30–14:00, ásamt súpu og nýbökuðu brauði. Áhersla er lögð á hollustu og hágæða, ferskt hráefni.


Laugar Spa Restaurant
Í Baðstofunni er Laugar Spa Restaurant, þar sem hægt er að fá hádegis- og kvöldverð ásamt fjölbreyttu úrvali léttra heilsurétta.
Tilvalið fyrir og eftir meðferðir á snyrti- og nuddstofunni til að endurnæra líkama og sál í Baðstofu Lauga Spa.
Einnig er hægt að panta mat og drykki af World Class + heilsuseðli.

World Class +
Heilsumatseðill með drykkjum, salötum, krispi, grautum og fleiru sem hjálpar þér að ná þínu markmiði.

Opnunartímar
- Laugar Spa Restaurant er opið:
Alla virka dag frá kl. 11:30-20:00.
Laugardaga frá kl. 11:30-20:00. - World Class + Laugar er opið:
Alla virka daga frá kl. 07:00-21:00.
Laugardaga frá kl. 09:00-20:00.
Sunnudaga 10:00-18:00.
Tilvalið er fyrir fyrirtæki og aðra hópa að koma í Laugar og njóta matar og drykkjar. Fyrirspurnir og bókanir berist til kim@worldclass.is