Pilates Club
Hvað er Pilates Club?
World Class Pilates Club býður upp á fjölbreytt, skemmtilegt og árangursríkt æfingakerfi á Pilates Reformer æfingabekkjum. Unnið er upp góðan svita með Pilates á okkar hátt: stemningstónlist, infrared hlýja, krefjandi vöðvaæfingar, kraftmiklar hreyfingar og ljós sem dansa í takt við tónlistina. Stilltu þig, lengdu og styrktu. Skráðu þig á póstlistann okkar til að vita um leið og skráning hefst!
Align, lengthen, strengthen.“
Okkar áherslur
Við leggjum áherslu á vinalegt og hvetjandi æfingaumhverfi. Í Reformer tímum leiðir þjálfari iðkendur í gegnum upphitun og dagskrá tímans, hvetur áfram og stuðlar að persónulegum árangri hvers og eins. Ef þú vilt tilheyra öflugu heilsusamfélagi, viðhalda fjölbreyttri æfingarútínu og stuðla að heilbrigðum lífsstíl, þá er Pilates Club fyrir þig!
Verð og tímar
Pilates Club býður upp á sveigjanlegar og aðgengilegar æfingar alla daga vikunnar fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Pilates Club salurinn er staðsettur á efri hæðinni í Laugum. Fyrir fyrsta tímann þinn mætir þú 10 mínútum fyrr og færð stutta kynningu og leiðbeiningar. Æfðu á þínum eigin hraða en gerðu alltaf þitt besta.
Gripsokkar eru nauðsynlegir í tímum. Þú getur keypt þá hér.
Pilates Club kort veitir aðgang að öllum opnum tímum World Class Pilates Club. Skráðu þig í tíma í gegnum tímatöfluna í Abler appinu eða hér á síðunni.
Pilates Club
Meðlimir World Class Pilates Club þurfa að eiga kort í World Class.