Næringarráðgjöf

Það er viðurkennt að árangur í heilsurækt byggir á samspili hugar og líkama. Einnig vitum við að holl næring er mikilvæg svo líkaminn starfi eðlilega og rétt mataræði skapar að minnsta kosti helming árangurs á móti hreyfingunni.

World Class býður uppá næringarráðgjöf sem byggir á 30 mínútna viðtali og eftirfylgni eftir þörfum með matardagbók og styttri viðtölum. Einnig er hægt að koma í reglubundið eftirlit þar sem ummál og fituprósenta er mæld og árangur metinn frá mánuði til mánaðar með útreikningum á hlutfalli vöðva og fitu. Með því má sjá hvort æfingarnar séu að skila tilætluðum árangri.

Mataræði skiptir gríðarlega miklu máli til þess að ná hámarksárangri samhliða líkamsrækt og við hvetjum við þig til þess að bóka tíma ef þig vantar aðstoð við að betrum bæta mataræðið þitt.

Fríða Rún býður uppá viðtöl og mælingar.

Næringarráðgjöf/viðtal: 6.000 kr
Mælingar fyrir korthafa World Class: 2.800 kr.
Mælingar fyrir þá sem eru ekki korthafar World Class: 3.470 kr.

Vinsamlegast hafið samband í 898-8798 eða með tölvupósti á frida@heilsutorg.is varðandi tíma í mælingar og næringarviðtöl.

Fríða Rún Þórðardóttir

Næringarráðgjafi

Fríða Rún Þórðardóttir er fædd 13. febrúar 1970 í Reykjavík.

Námsferill:

  • Stúdentspróf frá Náttúrufræðibraut Menntaskólans við Sund 1990.
  • BS próf í næringarráðgjöf 1993 & MS próf í næringarfræði frá The University of Georgia 1996.
  • IOC diploma í næringu íþróttafólks, apríl 2006.
  • Mjög iðin við eigin endurmenntun innanlands og erlendis.

Helstu störf:

  • Landspítali Háskólasjúkrahús, síðan vorið 1996. Starfa í eldhúsi LSH sem klínískur næringarfræðingur með ábyrgð á sér- og ofnæmisfæði, utanumhaldi um innihaldslýsingar og næringargildi, umsjón með nemum og heimsóknum í eldhúsið, tengiliður við lyflæknissvið LSH auk annarra verkefna.
  • Heilsutorg.com vefsíða um heilsu, eigandi og ritstjórn, 2013
  • Orange skrifstofuhótel, meðeigandi og stjórnarformaður, 2014
  • Hlaupahópur Víkings, þjálfari frá júní 2015
  • Sjálfstætt starfandi næringarfræðingur í World Class í Laugum (síðan 1997)
  • Held fjölda fyrirlestra á ári hverju fyrir fyrirtæki, hópa og íþróttafélög síðan 1996. Kenni á námskeiðum t.d. fyrir KSÍ og World Class og námskeið um eldun ofnæmisfæðis á vegum AO
  • Starfa fyrir fyrirtæki í matvælaiðnaði varðandi næringarrútreikninga og gerð á innihaldslýsingu. Aðstoð við úttekt á mötuneyti starfsmanna sem og við að stuðla að heilsueflingu starfsmanna