Öryggi og persónuvernd á vefnum

Þessi vefsíða notar vafrakökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að heimsækja worldclass.is samþykkir þú skilmála um vafrakökur.

Notkun á vafrakökum

Við notum vafrakökur (e. cookies*) á worldclass.is og þjón­ustu­vef okkar Mínum síðum til að halda utan um heim­sóknir og til að þekkja aftur þá sem nota Mínar síður. Þegar þú notar vefi World Class verða til upplýsingar um heimsóknina. World Class miðlar þeim ekki til annarra nema þegar eftiritsaðilar með starfseminni eiga rétt á slíkum upplýsingum samkvæmt lögum. 

Það er stefna World Class að nota vafrakökur sparlega og með ábyrgum hætti. Vilji notendur vefsins ekki að vafrakökur sé vistaðar er einfalt að breyta stillingum vafrans svo að hann láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. 

Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á howtogeek.com. Notkunarmöguleikar þínir á vefsíðu World Class gætu takmarkast við slíkar breytingar.

Google Analytics er notað til ­mæl­inga á vefnum. Þar safn­ast upp­lýs­ingar við hverja heim­sókn á vef­inn, til dæmis um dag­setn­ingu og tíma heim­sóknar, hvernig not­and­inn kemur inn á vef­inn, hvaða vafra og hvernig tæki hann notar og hvort notast er við leitarorð. Þessi gögn gefa okkur verðmæta inn­sýn í hvernig við getum þróað vef­inn og end­ur­bætt virkni hans út frá þörfum not­enda. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Google Tag Manager er notað til mælinga á notkun hakreita (e. checkbox) á vefnum.

* „cookies“ - sérstök skrá sem komið er fyrir á tölvu notanda sem heimsækir viðkomandi vef og geymir upplýsingar um heimsóknina. 

SSL skilríki

Worldclass.is notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru dulkóðuð en það gerir gagnaflutning í gegnum vefinn öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð og persónuupplýsingar. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

Vef­ur­inn er hýstur á Íslandi hjá fyr­ir­tæki með alþjóðlega ör­ygg­is­vottun (ISO 27001).

Persónulegar upplýsingar vegna vefverslunar

Þegar þú verslar á vefversluninni okkar munum við safna upplýsingum um kennitölu, nafn, heimilisfang, bæjarfélag, póstnúmer, netfang og síma. Þessar upplýsingar eru einungis notaðar til að hægt sé að klára pöntunina.

Þegar þú pantar vöru í vefversluninni eru upplýsingar um kreditkortið þitt aðeins vistaðar á meðan viðskiptin fara fram. Kortafyrirtækin geyma kortaupplýsingar þínar í öruggum kerfum sínum, en ekki á greiðslusíðunni sjálfri.

Um leið og pöntunin er staðfest og þú færð staðfestinguna í hendur verður öllum upplýsingum um kortið þitt eytt úr kerfinu. Kortaupplýsingar þínar eru öruggar á meðan ferlinu stendur.

Fyrir frekari upplýsingar um öryggi greiðslu þinnar vísum við á heimasíðu Valitor.