Truflanir á umferð við Laugar 19. júní
Miðnæturhlaup Suzuki – Truflanir á umferð næstkomandi fimmtudag
Næstkomandi fimmtudagskvöld fer Miðnæturhlaup Suzuki fram í Laugardalnum, og af því tilefni má búast við stuttum lokunum og truflunum á umferð í nágrenninu og við hlaupaleiðir víðar um borgina.
Við hvetjum alla meðlimi og gesti World Class til að kynna sér fyrirfram hvaða áhrif þetta gæti haft á aðgengi og umferð, sérstaklega þá sem ætla sér að heimsækja stöðvar í og við Laugardalinn á hlaupdeginum.
Nánari upplýsingar má finna hér:
Vinsamlegast kynnið ykkur upplýsingarnar og látið þá sem þurfa vita, eins og við á.
Við óskum öllum hlaupurum góðs gengis – og minnum á mikilvægi þess að hreyfa sig með bros á vör! 🏃♀️🏃♂️✨