Laugar Spa Reykjavík

Dekraðu við þig og þína

Aðgangur í Baðstofu

Veldu staðsetningu

Veldu meðferðartegund

Því miður eru engar meðferðir í boði

Hiti

Í Baðstofunni eru sex misheitar blaut- og þurrgufur þar af eru tvær infrarauðrar gufur (infrared sauna). Hver gufa hefur sinn einstaka ilm og má m.a. anda að sér sítrónu, piparmyntu og lavender, svo eitthvað sé nefnt. Ákveðið þema einkennir hverja gufu og þar má m.a. heyra fugla- og lækjarnið, upplifa stjörnuhvolfið sem og sólarupprisu eða hverfa til austurrísku bjálkakofanna.

Vatn

Í nuddpottinum sem byggður er úr graníti er hægt er að láta þreytuna líða úr sér eða hvíla þreytta fætur í þar til gerðum fótlaugum. Þeir sem vilja ferska upplifun skella sér í kaldan pott eða í heit og köld víxlböð í sérútbúnum klefum, eða baða sig í 6 metra breiðum fossi lystilega hönnuðum af Sigurði Guðmundssyni listamanni. Listilegt handbragð Sigurðar er einstakt og einkennist af handbragði meistara sem á sér engan líkan.

Slökun

Hvíldarherbergi Baðstofunnar er draumi líkast þar sem íslenskt landslag prýðir veggina ásamt kínversku graníti og listaverkum Sigurðar Guðmundssonar, að ógleymdum arninum sem prýðir miðju stofunnar. Í Baðstofunni er einnig fyrsta flokks veitingaaðstaða, þar sem hægt er að njóta drykkja og veitinga í einstöku umhverfi.