Uppfærsla á Baðstofunni í Laugum hefst 10. júní
Þann 10. júní hefjumst við handa við uppfærslu á Baðstofunni í Laugum. Við erum að endurnýja bæði Baðstofuna sjálfa og aðkomusvæðið, og hlökkum til að sýna útkomuna þegar framkvæmdum lýkur.
Á meðan framkvæmdir standa yfir verður Baðstofan lokuð, en öll önnur aðstaða í Laugum verður opin eins og venjulega, þar á meðal baðstofuklefar, sundlaug og heilsurækt.
Á meðan opnum við úti-spa í sundlaugargarðinum í Laugum fyrir meðlimi Baðstofunnar. Þar verða tvær þurrgufur, infrared-gufa, kaldur pottur og notalegt setusvæði.
Ekki er tekið við hópabókunum á meðan uppfærslan stendur yfir.
Heilsukveðjur,
Starfsfólk World Class