Mynd af Gísli Hrafn Gunnarsson
Til baka í einkaþjálfara

Gísli Hrafn Gunnarsson

Menntun:  

200 RYT (Registered yoga teacher) réttindi frá Rishikesh YogPeeth, Indlandi.

500 RYT réttindi frá Association of Yoga and Meditation undir handleiðslu Chetan Mahesh, Indlandi.

200 RYT réttindi frá Open Sky undir handleiðslu Francois Raoult, Íslandi.

Grunnkennslu réttindi í Tai Chi og Shaolin Kung Fu frá Kunyu Mountain Shaolin Academy, Kína.Anwärter Skíða- og snjóbrettakennsluréttindi frá Ski Instructor Academy, Austuríki.

Nuddnám hjá Ayurveda Massage School, Indlandi.

Acupressure reflexology nudd hjá Ayurveda Heritage undir Vivek Bharat Gaur, Indlandi.

Deep tissue release nudd undir handleiðslu Dr. Chen í Yentai, Kína.

TRM áfallanámskeið fyrir fagfólk hjá The Trauma Resource Institute.

Grunnnám og framhaldsnám í markþjálfun hjá Virkja.

Reiki 1 vígsla í frá Vivek Barat Gaur, Indlandi.

Reiki 2 og 3 vígsla frá Þuríði Maríu Guðmundsdóttur.

Nám í Norður Amerískum Shamanisma hjá Robbie Warren, Íslandi.

Sérhæfing: 

Ég sérhæfi mig í þjálfun einstaklinga sem glíma við langvarandi verki, meiðsli, skerta hreyfigetu og ójafnvægi í líkamanum. Með einstaklingsmiðaðri styrktarþjálfun vinn ég að því að leiðrétta hreyfiferla, endurheimta náttúrulega hreyfigetu og byggja upp líkamann þannig að hann geti hreyft sig af meira öryggi og með minna álagi.

Markmið mitt er ekki aðeins að hjálpa fólki að líða betur í líkamanum í dag, heldur að byggja upp styrk og hreyfigetu sem þjónar því til framtíðar.

Áhugamál: 

Íþróttir og hreyfing hafa heillað mig svo lengi sem ég man eftir mér. Ég hef sérstakt dálæti á hlaupum og bardagalistum en hef áhuga á nánast öllu sem tengist líkamanum og hreyfingu.

Fyrir utan það hef ég mikinn áhuga á stjörnuspeki, heimspeki og andlegum fræðum, þá sérstaklega indverskri heimspeki. Ég elska að ferðast, kynnast ólíkum menningarheimum og verja tíma úti í náttúrunni, hvort sem það er í gönguferðum, hlaupum eða lengri ferðalögum.

En ef til vill hef ég mestan áhuga á manneskjunni sjálfri. Mér finnst svo áhugavert að kynnast fólki og því sem gerir hvert og eitt okkar að því sem við erum: líkamanum, huganum, tilfinningunum og öllu því sem mótar manneskjuna sem heild.

Uppáhalds matur: 

Soðið slátur með kartöflum og hvítri sósu nærir sálina jafnt sem líkamann en matur sem ég borða reglulega þá er tælenskur matur í uppáhaldi. Ég er heppinn að eiga tælenska tengdamóður sem eldar einnig besta tælenska mat sem ég hef smakkað. 

Guilty pleasure: 

Ég er alltof mikill nammigrís og elska kók með góðum mat.