.png&w=2080&q=75)
UnglingaStyrkur
- Vönduð kennsla og fræðsla.
- Aðgangur að Laugardalslaug, Sundlaug Seltjarnarness, Breiðholtslaug, Árbæjarlaug, Lágafellslaug, Sundlaug Hellu, Sundlaug Akureyrar, Sundhöll Selfoss og Vestmannaeyjar.
Kennari: Jón Þór
UnglingaStyrkur er 10 vikna námskeið fyrir krakka í 7.–10. bekk sem vilja læra að æfa á öruggan og markvissan hátt í tækjasal. Hægt er að mæta milli 15:00 og 16:00 og vera til 17:00 og taka klukkutíma æfingu
Undir leiðsögn Jóns Þórs Stefánssonar einkaþjálfara kynnast þátttakendur helstu tækjum og æfingum, læra rétta líkamsbeitingu og byggja upp góðan grunn til framtíðar. Farið verður eftir tveggja daga æfingaáætlun sem þjálfar allan líkamann, bæði með tækjum og fjölbreyttum æfingum án tækja.
Á námskeiðinu verður einnig fjallað á einfaldan og aðgengilegan hátt um hollt mataræði, góðar venjur og það sem hjálpar unglingum að ná árangri og líða vel. Áhersla er lögð á faglega leiðsögn, jákvæða upplifun og aukið öryggi í tækjasalnum.
Þátttakendur geta farið á milli tímasetninga eftir þörfum.
Hægt er að nýta frístundastyrk upp í námskeiðsgjaldið.