
Allt á Hvolfi
Tegund
Námskeið
Lengd
1 dagar
Skráning í Allt á Hvolfi
Innifalið með skráningu á námskeið:
- Vönduð kennsla og fræðsla.
- Aðgangur að öllum opnum tímum á öllum stöðvum World Class.
- Aðgangur að Laugardalslaug, Sundlaug Seltjarnarness, Breiðholtslaug, Árbæjarlaug, Lágafellslaug, Sundlaug Hellu, Sundlaug Akureyrar, Sundhöll Selfoss og Vestmannaeyjar.
- 20% afsláttur af stökum degi/skipti í Betri stofuna.
Vatnsmýri
Kennari: María Hólm
Langar þig til að snúa þér við? Öðlast sjálfstraust og öryggi til að fara í tripod, höfuðstöðu og jafnvel kráku í tíma? Þá er þetta vinnustofa fyrir þig.
Farið verður ítarlega í höfuðstöðu A og B og krákuna ef við náum. Allir fá tækifæri til að æfa sig með aðstoð. Takmarkið er að iðkendur fái grunn til að byggja á svo þeir geti haldið áfram að æfa í opnum tímum. Oft vantar bara herslumuninn og voilà – við svífum upp.
Námskeiðið hefst á mjúkri upphitun, æfingum í ofangreindum stöðum og góðri slökun í lokin.