
Sérhæfing
Tek að mér þjálfun sem leggur áherslu á vöðvauppbyggingu, fitubrennslu, styrktaraukningu, sprengikraftsþjálfun eða einfaldlega almenna líkamsrækt í þeim tilgangi að auka bæði andlega og líkamlega vellíðan. Ég tek einnig að mér styrktarþjálfun íþróttamanna og þá helst í fótbolta, körfubolta og handbolta ásamt því að þjálfa keppendur í fitness og vaxtarrækt. Ég legg einnig mikla áherslu á fjölbreyttar og markvissar æfingar ásamt markmiðasetningu einstaklinga, bæði skammtíma- og langtímamarkmið.
Um þjálfarann
Ég er þrefaldur bikarmeistari í fitness.
Menntun
- BSc í Íþróttafræði HR - 2016.
Næsti kafli er þinn.
Teitur · LaugarHafa samband



