
Sérhæfing
Styrktarþjálfun fyrir bæði kyn með áherslu á góða keyrslu í lyftingasal og úthaldsþjálfun fyrir fólk á öllum aldri, fara yfir matarplan
Spurt og svarað
Hvað gerirðu utan salarins?
Íþróttir, kvikmyndir, gönguferðir og útivist
Spurt og svarað
Uppáhalds matur?
Ég elska nautakjöt á góðum dögum en borða alltaf fisk í hverri viku
Spurt og svarað
Guilty pleasure?
Ég er mikill nammikarl og súkkulaði er minn veikleiki
Um þjálfarann
Ferill: Hef alltaf verið í íþróttum og hreyfingu Spilað knattspyrnu frá 6 ára aldri og er enn að. Byrjaði að lyfta lóðum árið 1989, tók þátt í fyrsta fitnessmótinu 2001, þrekmeistara liðakeppni 2002 og tók síðast þátt í IceFitnessmóti árið 2006.
Eftir þetta sprikl liggja 6 silfur í fitness og fjölmargir verðlaunapeningar og Íslandsmeistaratitlar í eldri flokkum í knattspyrnu.
Menntun
- Einkaþjálfaranámskeið World Class árið 2002 hjá Sölva Fannari.
- Mikil reynsla og hef þjálfað hjá World Class frá 2001.
- Hef tekið þátt í 11 fitnessmótum og hef þjálfað heilmarga keppendur og íþróttafólk
Sérsvið
- Styrkur
- Þyngdartap
- Vöðvamassi
- Byrjendur
- Lengra komnir
- Íþróttafólk
- Lyftingar
- Eigin þyngd
- Matarplan
Næsti kafli er þinn.



