Sérhæfing

Ég býð upp á þjálfun á íslensku og ensku / I coach in Icelandic and English

Ég get aðstoðað fólk í skipulagðri endurhæfingu. Fjölbreyttar æfingar með það að markmiði að auka hreyfigetu líkamans. Samanstendur af liðleika, styrk, þol og jafnvægisæfingum fyrir líkamann. Ég mun aðstoða kúnnana mína í að horfa heildrænt á sína heilsu með því að skoða daglegar venjur sem snúa hugarfari, svefn og næringu. Ég sérhæfi mig sérstaklega í að vinna með fólki sem er að byrja í fyrsta sinn í ræktinni og vantar góða handleiðslu inn í að koma hreyfingu inn í lífsstílinn og einnig þá sem eru að koma sér aftur af stað eftir hlé eða jafnvel eftir einhvers konar veikindi hvort sem það eru andleg eða líkamleg. Ég býð upp á ýmsar útfærslur á þjálfun, hafðu endilega samband og við finnum út úr því hvað hentar þér best. Býð upp á hópaþjálfun / vinaþjálfun / pör fyrir 2–4 saman.

Um þjálfarann

Ég er með M.Sc.-gráðu í sjúkraþjálfun og M.Sc.-gráðu í mannauðsstjórnun.

Í minni þjálfun legg ég áherslu á einstaklingsmiðaða og gagnreynda nálgun þar sem markmiðið er ekki aðeins að bæta styrk, þol og líkamsform heldur einnig að stuðla að betri heilsu, vellíðan og lífsgæðum til lengri tíma.

Ég vinn með einstaklingum á öllum getustigum, hvort sem markmiðið er að byggja upp vöðvamassa, minnka líkamsfitu, bæta líkamlega getu eða öðlast meira sjálfstraust í hreyfingu. Ég legg sérstaka áherslu á að aðlaga þjálfun að þörfum hvers og eins, meðal annars með tilliti til fyrri meiðsla, verkja og annarra líkamlegra áskorana.

Hjá mér snýst einkaþjálfun um meira en æfingarnar sjálfar. Ég legg áherslu á heildræna nálgun þar sem hreyfing, næring, svefn og daglegar venjur vinna saman að betri árangri.

Markmið mitt er að hjálpa þér að byggja upp styrk, bæta heilsuna og skapa sjálfbærar venjur sem endast.

Menntun

  1. MSc í sjúkraþjálfun

Sérsvið

  • Almennt form og heilsa
  • Eldri (60+)
  • Pör og smáhópar
  • Stoðkerfisvandi
  • Lífsstílssjúkdómar
  • Næringarráðgjöf
  • Hugarfar og venjur
  • Ungmenni (13–18)
  • Fatlaðir einstaklingar

Næsti kafli er þinn.

Eirikur · Laugar +7Hafa samband