Ólöf Steingrímsdóttir

← Einkaþjálfari

Ólöf Steingrímsdóttir

Stöð

TungumálÍslenska
Hafa samband →

Sérhæfing

Ég tek að mér konur eða karlmenn, byrjendur jafnt sem og lengra komna

Ég elska krefjandi verkefni og að sjá gleði í fólki þegar þau ná markmiðum sínum. Ég hef hjálpað mörgum áður en ég fékk réttindin mín og það væri heiður að fá að hjálpa þér líka. Styrktarþjálfun Vöðvauppbygging Þolþjálfun Jafnvægisþjálfun Liðleikaþjálfun Fitutap Æfingarprógröm Matarplön Matardagbækur Heilsufarsmælingar

01 · Spurt og svarað

Hvað gerirðu utan salarins?

Allt sem við kemur heilbrigði eins og næring, svefn og hreyfing en svo er það efst hjá mér snjóbretti, skíði, fjallgöngur og lyftingar. Uppáhaldstónlist: 80's, hiphop og house tónlist klárlega. Er samt rosalega hrifin af gömlum íslenskum lögum líka.

02 · Spurt og svarað

Uppáhalds matur?

Grillaður skötuselur

03 · Spurt og svarað

Guilty pleasure?

Súkkulaði, gæti aldrei sagt skilið við það.

Um þjálfarann

Reynsla: Ég er fædd 1982 og hef stundað íþróttir og líkamsrækt frá 5 ára aldri. Ég æfði fimleika í 16 ár og hef unnið með mín eigin íþróttameiðsl mikið ásamt stjórn á líkamanum, jafnvægi og líkamsþyngdaræfingar.

Ég æfði þar á eftir Kickbox og svo Muay Thai.

Ég hef stundað líkamsrækt og almennar lyftingar frá 16 ára aldri.

Ég treysti mér í flest meiðsli sem fólk er að vinna með og fer mjög varlega í kringum það því ég þekki vel að styrkja líkamshluta sem þurfa varkárni við styrktarjálfun.

Menntun

  1. Einkaþjálfaraskóli World Class 2020
  2. Skyndihjálparnámskeið 2007 og 2020

Næsti kafli er þinn.

Ólöf · LaugarHafa samband