Hilmar Björn Harðarson

← Einkaþjálfari

Hilmar Björn Harðarson

Stöð

TungumálÍslenska
Hafa samband →

Sérhæfing

Vöðvauppbygging, hækka brennslugetu líkamans, mótun, almenn styrktar- og þolþjálfun. Skýr markmiðasetning sem fylgt er eftir alla leið - ekki bara fyrst! Býð m.a. upp á 30 mínútna hraðferð fyrir þá sem hafa þéttbókaðan sólarhring og vilja hámarka tímanýtingu í ræktinni sem síðan leiðir til aukinna afkasta á öðrum vígstöðvum. Legg áherslu á langtímaárangur með eins hröðum skrefum og skynsemin leyfir.

01 · Spurt og svarað

Hvað gerirðu utan salarins?

Líkamsrækt, viðskipti, íþróttir almennt, bílar o.m.fl.

Um þjálfarann

Reynsla: Hef stundað íþróttir allt mitt líf. Varð m.a. Íslands- og bikarmeistari í körfubolta á mínum yngri árum. Hef verið með annan fótinn í æfingasalnum í yfir 20 ár og starfað sem einkaþjálfari í 14 ár.

Menntun

  1. 2008 B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík (numið að hluta í Copenhagen Business School)
  2. 2004 ACE-einkaþjálfaragráða (American Council on Exercise-certified personal trainer)
  3. 2003 Verslunar- og stúdentspróf af viðskiptasviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti
  4. Námskeið:
  5. Næring og Heilsa á vegum Símenntunar Háskólans í Reykjavík 2008
  6. Skyndihjálparnámskeið reglulega
  7. Dale Carnegie, Áhrifaríkar kynningar - 2006
  8. Námskeið í íþróttasálfræði á vegum Íþróttaakademíunnar 2007
  9. Fjölda annarra styttri námskeiða og fyrirlestra er varða líkams- og heilsurækt

Næsti kafli er þinn.

Hilmar · LaugarHafa samband