Kaupa kort
- 1 stöð með Box 201
- Aðgangur að 20 heilsuræktarstöðvum World Class
- 10 sundlaugar
- Yfir 500 hóptímar í viku
Box 201 er viðbót við World Class kortið.
Box 201 er viðbót við World Class kortið.
Hvað er Boxing Academy?
Hnefaleikaþjálfun í Breiðholti undir handleiðslu Hnefaleikafélags Reykjavíkur. Unglingabox, Box 101 fyrir fullorðna og Box 201 framhaldstímar fyrir fullorðna.
WCBA er hnefaleikakennsla inn í World Class sem er undir handleiðslu Hnefaleikafélags Reykjavíkur sem er stærsta hnefaleikafélag á landinu og á sér áralanga farsæla sögu í greininni en þaðan hafa komið fjölmargir Íslands- og bikarmeistarar ásamt fjölmörgum erlendum verðlaunahöfum á alþjóðlegum mótum í greininni.
Allir tímar og námskeið sem kennd eru í WCBA eru undir handleiðslu kennara með ýmist yfir áratuga langa reynslu eða keppendum á hæsta reynslustigi í greininni sem þekkist hér á landi. Yfirþjálfarinn hjá WCBA er Davíð Rúnar Bjarnason en hann hefur nálægt tveggja áratuga reynslu úr hnefaleikum og komið víða við í heiminum bæði sem keppandi og þjálfari.
Kennt er eftir miklu og góðu agakerfi sem hefur reynst mjög vel hjá þjálfurum undanfarin ár og skilað miklum árangri en markmið þjálfunarinnar er mikil blanda þess að móta sterka boxara en á sama tíma byggja upp sterka einstaklinga. Mikil áhersla er á öryggi og allt á æfingum framkvæmt undir miklu eftirliti.
Mikið úrval er á námskeiðum: Krakkabox 8–11 ára, Unglingabox 12–16 ára, Fitnessbox, fullorðinsframhald og margt fleira á leiðinni. Grunnnámskeið verða haldin reglulega og auglýst hverju sinni.
Þjálfarar
Námskeið og þjálfun
Tvær leiðir inn: fyrir fullorðna byrjendur og unglinga.
17 ára og eldri
Tæknileg undirstöðuatriði hnefaleika kennd þar sem farið er yfir alla þætti greinarinnar með öryggi í fyrirrúmi.
Frá 19.900 kr.
Grunn + framhald
Tækniáhersla, agi og félagsleg þjálfun fyrir unglinga sem eru að taka sín fyrstu skref eða halda áfram eftir grunnnámskeið.
Þú getur nýtt frístundastyrk.
Frá 35.340 kr.
Stöðvar
Æfingar með Box 201 áskrift.