Bera saman
| GrunnurHeilsurækt | VellíðanHeilsurækt + Baðstofa | |
|---|---|---|
| Stöðvar | Allar 20 heilsuræktarstöðvar World Class | Allar 20 heilsuræktarstöðvar World Class |
| Opnir tímar | Aðgangur að öllum opnum tímum | Aðgangur að öllum opnum tímum |
| Sundlaugar | Aðgangur að 10 sundlaugum | Aðgangur að 10 sundlaugum |
| Afsláttur í Laugar Spa | — | 10% af öllum vörum og þjónustu snyrti- og nuddstofunnar Nýtist þegar greitt er á staðnum. Gildir ekki um gjafabréf. |
| Baðstofan | 20% afsláttur af stöku skipti í Baðstofu | Fullur aðgangur |
| Fríðindi í Baðstofunni | — | Handklæði og baðsloppur í hverri heimsókn |
| Handklæði á stöðvum | — | Handklæði á öllum stöðvum Nema í Ögurhvarfi og Dalshrauni. |
| Endurheimt saltskrúbbur | — | Einn Endurheimt saltskrúbbur í Baðstofunni á mánuði |
| Vinamiðar | Tveir vinamiðar í heilsuræktina á mánuði Fylgja mánaðarkortum og lengri samningum · 13 ára aldurstakmark · Gilda ekki í Ögurhvarfi, Dalshrauni eða Árbæjarlaug. | Tveir vinamiðar á mánuði, í Baðstofuna eða heilsuræktina Fylgja mánaðarkortum og lengri samningum · 18 ára aldurstakmark · Gilda ekki í Ögurhvarfi, Dalshrauni eða Árbæjarlaug. |
| Fríðindi fyrir maka | — | Ef keypt er árskort í Baðstofuna býðst maka uppfærsla á heilsuræktarkorti í Baðstofukort á 83.200 kr. |
Klúbbarnir
Sérhæfð kerfi með eigin þjálfurum, aðstöðu og samfélagi. Bætast við World Class kort.

Vellíðan
Heitir og kaldir pottar, saunur, innrautt og full aðstaða til að ná sér niður eftir æfingu. Innifalin í Heilsurækt + Baðstofa korti og með afslætti í Laugar Spa.
Fyrir alla sem mæta
Algengar spurningar
Þú sækir allar kvittanir inni á aðganginum þínum. Nánari leiðbeiningar eru á hjálparsíðunni.
Já. Korthafar fá 20% afslátt af stökum tíma í Baðstofunni.
Öryrkjar fá 15% afslátt af kortum gegn framvísun skírteinis. Afslátturinn gildir ekki af 15 skipta kortum. Ellilífeyrisþegar fá 25% afslátt af árskortum og áskriftarsamningum sem veita aðgang milli kl. 08:00 og 16:00 á virkum dögum og ótakmarkaðan aðgang um helgar. Sjá kort fyrir eldri borgara
Heilsuræktarkorthafar fá tvo vinamiða í heilsuræktina í hverjum mánuði (aldurstakmark 13 ára). Baðstofukorthafar fá tvo vinamiða í Baðstofuna í hverjum mánuði (aldurstakmark 18 ára). Þegar þú nýtir vinamiða þarftu að mæta með vininn í afgreiðsluna. Vinamiðar gilda ekki í Ögurhvarfi, Dalshrauni eða Árbæjarlaug.
Já. Þú greiðir fyrstu greiðsluna á kaupdegi og næsta greiðsla kemur í lok tímabilsins. Þannig eru kortin alltaf fyrirframgreidd.
Forráðamaður velur frístundastyrkinn í kaupferlinu á worldclass.is. Styrkurinn gildir aðeins fyrir kort eða námskeið sem eru að minnsta kosti 10 vikur.
Frístundastyrkur gildir fyrir öll eingreiðslukortin: Skólakort 3 mánuðir, 9 mánuðir og Ár. Hann gildir ekki fyrir Skólakort – Árssamning (greitt mánaðarlega), því sá samningur er tímabundinn áskriftarsamningur en ekki eingreiðsla.
Já. Þú slærð inn debet- eða kreditkortanúmer í greiðsluferlinu.
Þú getur skipt um greiðslukort á samningnum hvenær sem er. Ítarlegar leiðbeiningar eru á hjálparsíðunni.
Skólakort er sérstakt kort fyrir nemendur í námi. Það kemur í tvenns konar útfærslum: • Skólakort – Árssamningur: tímabundinn samningur, greiddur mánaðarlega yfir 12 mánuði. Hann er óuppsegjanlegur og fellur sjálfkrafa úr gildi á lokadegi. • Skólakort – 3 mánuðir, 9 mánuðir og Ár: eingreiðslur sem greiðast í einu fyrirfram. Þær renna sjálfkrafa út á lokadegi. Engin uppsögn nauðsynleg. Undir 18 ára geta keypt skólakortið beint á worldclass.is/kaupa-kort. 18 ára og eldri þurfa að koma í afgreiðslu á næstu stöð World Class með staðfestingu á að vera í námi (t.d. nemendaskírteini eða staðfestingu frá skóla). Skólakort gildir aðeins fyrir heilsurækt, ekki fyrir Laugar Spa eða Baðstofuna.
Ótímabundnir samningar (mánaðarleg áskrift) eru með tveggja mánaða uppsagnarfresti sem miðast við næstu endurnýjun. Lágmarkstími áskriftar er því þrír mánuðir, og kortið helst virkt út uppsagnarfrestinn. Tímabundnir samningar (t.d. Árssamningur eða Skólakort – Árssamningur) eru aftur á móti óuppsegjanlegir og falla sjálfkrafa úr gildi á lokadegi tímabilsins. Nánari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag eru í skilmálunum okkar.
Nei. Við bjóðum ekki upp á að frysta kort eða leggja þau inn vegna fría eða ferðalaga. Ef annað á við, sendu okkur póst á worldclass@worldclass.is.
Fjölskyldumeðlimir með sama lögheimili fá 5% fjölskylduafslátt af kortum.
Já. Bóka þarf fyrirfram í alla hóptíma. Bókaðu í tímatöflunni á worldclass.is eða í Abler-smáforritinu.
Já. Sem Baðstofukorthafi færðu handklæði á öllum stöðvum World Class, nema á Dalshrauni og Ögurhvarfi.
Já. Opnir hóptímar eru á tímatöflu og innifaldir í kortum og námskeiðum.