Elmar Eysteinsson

← Einkaþjálfari

Elmar Eysteinsson

TungumálÍslenska
Hafa samband →

01 · Spurt og svarað

Hvað gerirðu utan salarins?

Líkamsræktin er stór hér, finnst svo einnig gaman að fara á hestbak heima í sveit, fylgist með körfubolta bæði íslenska og NBA deildinni. Reyni svo að horfa á leiki með mínum mönnum í Man Utd. Uppáhaldstónlist: Rapptónlistin á hug minn allan, bæði íslenskt og erlent.

02 · Spurt og svarað

Uppáhalds matur?

Grilluð folaldasteik og meðlæti að hætti foreldra minna.

03 · Spurt og svarað

Guilty pleasure?

Heimabökuð pizza sem við bræðurnir gerum frá grunni, áleggið er ekkert sparað þegar við hendum í pizzu.

Um þjálfarann

Legg mikið upp úr lífsstílsbreytingu hjá fólki sem kemur til mín í þjálfun, hvort sem það vill léttast, styrkjast, auka vöðvamassa, bæta þol eða komast í almennt betra form. Tek að mér þjálfun á fólki á öllum aldri og allt frá byrjendum til íþróttafólks.

Nánari upplýsingar á www.fitlif.is

Menntun

  1. Stúdent af félagsfræðibraut
  2. B.s. íþrótta- og heilsufræðingur
  3. Íslandsmeistari í Fitness 2016

Næsti kafli er þinn.

Elmar · SelfossHafa samband