
*Athugið að húsið lokar 30 mínútum eftir auglýstan lokunartíma.
World Class Mosfellsbæ opnaði 700 m2 stöð 15. desember 2007. Þann 11. janúar 2020 var svo opnuð 900 m2 viðbygging þar sem er að finna 2 nýja búningsklefa, infrared heitan sal, almennan hóptímasal, hjólasal og barnahorn.
Tækjasalurinn er vel búinn upphitunartækjum, lyftingatækjum og lausum lóðum. Í stöðinni eru upphitunartæki: hlaupabretti, skíðavélar, stigvélar og hjól. Öll tækin í tækjasalnum eru frá Life Fitness og Hammer Strength sem eru taldir vönduðustu framleiðendur á sínu sviði í heiminum í dag. Boðið er upp á þjónustu þjálfara í tækjasal viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Stöðin inniheldur hjólasal með 40 IC7/IC8 hjólum byggður upp á pöllum með led lýsingu, heitan hóptímasal með infrared hita í lofti og gólfi ásamt hita og rakatækjum fyrir heita tíma, hóptímasal og glæsilega barnagæslu. Korthafar hafa aðgang að öllum opnum tímum skv. tímatöflu en svo eru einnig lokuð námskeið í boði sem og einkaþjálfun.
Stöðin inniheldur:
Hjólasal
Það eru fáar hreyfiaðferðir sem brenna jafn miklu og hjól. Í CBC er hjólað eftir púls og wöttum sem segja til um hver hámarksgeta er. Kennt er Hjólatími.
Hóptímasal
Fjöldi hóptíma er í boði í Mosfellsbæ: Buttlift, Styrkur & Tabata
Heitan sal
Heitur hóptímasalur með infrarauðum hita í lofti og gólfi ásamt hita og rakatækjum. Kennt er: Infrared Hot Fit & Infrared Yin Yoga
Hér eru nokkrir punktar um ávinning þess að stunda æfingar í infrarauðum sal og hvað infrarauður hiti getur gert fyrir okkur:
- Eykur útskilnað úrgangs / eiturefna í líkamanum
- Styrkir ónæmiskerfið
- Dregur úr vöðvaverkjum, spennu, bólguástandi, liðverkjum og óhreinni húð
- Eykur blóðrásina og umbrot (eykur þannig bruna líkamans)
- Dregur úr streitu og veitir orku
- Lækkar blóðþrýsting
- Hraðari endurheimt eftir meiðsli og æfingar með hárri ákefð.
- Infrarauður hiti styður við önnur meðferðarúrræði.
Dansstúdíó World Class
Dansstúdíóið býður upp á dans krakka á öllum aldri.
Barnahorn
Aðgangur að barnahorni er viðskiptavinum World Class í boði þeim að kostnaðarlausu. Barnahornið er einungis ætlað fyrir eldri börn sem mögulegt er að skilja eftir ein án eftirlits í skamman tíma. Leyfilegt er að nota leikföng, DVD spilara og sjónvarp svo lengi sem gengið er vel frá eftir börnin.
Korthafar hafa aðgang að öllum 18 stöðvum World Class ásamt aðgangi að 8 sundlaugum (Árbæjarlaug, Laugardalslaug, Seltjarnarneslaug, Lágafellslaug, Breiðholtslaug, Sundhöll Selfoss, Sundlaugin Hellu & Sundlaug Akureyrar).
EINKAÞJÁLFARAR Í WORLD CLASS MOSFELLSBÆ

Berglind Jónsdóttir
jonsd.berglind@gmail.com

Björn Þór Sigurbjörnsson
bjorn@likami.is

Eggert Rafn Einarsson
sersnidin@gmail.com

Hreinn Orri Hreinsson
hreinasti@kopbois.com

Laimutis Vaiciulis
lemongym@gmail.com

Marek Einar Murawski
marekthjalfun@simnet.is
*Athugið að húsið lokar 30 mínútum eftir auglýstan lokunartíma.