Helga Guðmundsdóttir

← Personal trainer

Helga Guðmundsdóttir

LanguagesÍslenska
Get in touch →

Focus

Styrktarþjálfun og úthaldsþjálfun

Ég hef mikla reynslu af fólki sem er að koma sér af stað eftir kyrrsetu. Vinn með þeim markmiðaáætlun og passa upp á alla hreyfigetu. Legg áherslu á að æfingar séu framkvæmdar rétt og fer vel yfir tilganginn með æfingaplönunum. Hef hjálpað fólki sem vill styrkjast, léttast, auka úthald eða hreinlega að komast í alhliða betra form. Hef þjálfað CrossFit og rekið CrossFit stöð í 10 ár og með mikla reynslu af fólki með mismunandi þarfir og væntingar og sérþekkingu á lyftingum, bæði ólympískum og kraftlyftingum.

01 · Q&A

What do you do outside the gym?

Heilsurækt, fjallgöngur, ferðalög og eldamennska. Uppáhaldstónlist: Alæta á tónlist

02 · Q&A

Favourite food?

Lasagne

03 · Q&A

Guilty pleasure?

Súkkulaði www.helgafit.is

About

Reynsla: Hef stundað líkamsrækt alla ævi. Hljóp mikið á árunum 2003–2012, heil og hálf maraþon, Laugaveginn og millivegalengdir og var á lista yfir topp 20 kvenna í öllum vegalengdum árið 2004. Byrjaði CrossFit 2010 og keppti 3x á Evrópuleikunum. Æfði Kraftlyftingar 2014–2016, varð Íslandsmeistari í opnum flokki í bæði klassískum og búnaðarkraftlyftingum. Keppti á EM og HM í opnum flokki á þessu tímabili. Átti mörg Íslandsmet í öllum lyftum og vann brons á EM í bekkpressu. Hef tekið mikið að mér einkaþjálfun síðustu 8 ár og smærri hópa með mjög góðum árangri. Hef verið með meðgöngu- og mömmutíma í Functional Fitness. Hef tekið að mér fólk sem vill komast í Lögregluskólann og hafa þau alltaf staðist inntökuprófið. Er keppnismanneskja í grunninn og tek þá ástríðu með mér í þjálfunina á öðrum. Býð einnig upp á fjarþjálfun, sniðin að þörfum hvers og eins.

Education

  1. Textílhönnuður úr Listaháskóla Íslands
  2. Level 1 CrossFit Þjálfun
  3. Þjálfun og æfingabúðir í Kraftlyftingum hjá Dietmar Wolf, einum fremsta kraftlyftingaþjálfara heims, æfingaáætlanagerðir og hreyfiflæði.
  4. Helgarnámskeið í Ólympískum lyftingum og kennslufræði.

The next chapter is yours.

Helga · TjarnarvellirGet in touch