
Focus
Ég hef mikla þekkingu og reynslu þegar kemur að því að taka sem allra mest út úr skrokknum hvað varðar styrk, stærð og úthald. En einnig hef ég mikinn áhuga á almennri heilsu og langlífi. Ég hef áhuga á og hef gaman af því vinna með öllum á hvaða aldri sem er, mæta fólki á þeim stað sem það er og hjálpa því að komast nær sínum markmiðum.
01 · Q&A
What do you do outside the gym?
Líkamsrækt hefur átt allan minn hug síðan ég byrjaði að lyfta 12 ára gamall. Ég hef keppt í fitness en stærstan hluta af mínum íþróttamannaferli var ég í aflraunum. Ég hef unnið flest íslensk aflraunamót en einnig hef ég keppt fjórum sinnum á sterkasti maður heims og farið í úrslit tvisvar sinnum. Einnig hef ég keppt oftar en einu sinni á sterkasti maður Evrópu með góðum árangri, rogue invitational og fleiri stórmótum á þessu sviði. Ég er mikill bíla- og tækjamaður en ég keppi reglulega í kvartmílu og nýt þess mikið að vinna í og smíða tæki og tól. Ég á yndislega konu og dóttur sem að ég elska að eyða tíma með
02 · Q&A
Favourite food?
Ég elska góða steik en pizza á alltaf sér stað í hjarta mínu
03 · Q&A
Guilty pleasure?
Gera og fara allt í inniskóm
Education
- EMT basic
- KVAN leiðtoganámskeið
The next chapter is yours.



