Focus

Þjálfunin hjá mér hentar sérstaklega vel byrjendum, þeim sem finnst óþægilegt eða kvíðvænlegt að fara í ræktina, þurfa aukinn stuðning eða eru að byrja aftur eftir hlé. Ég legg sérstaka áherslu á að styðja fólk sem er að jafna sig eftir kulnun eða meiðsli. Ég hef sjálf upplifað kulnun og veit hversu mikla orku það getur tekið að komast einfaldlega fram úr rúminu. Heldur þunglyndi, kvíði eða önnur andleg vanlíðan aftur af þér? Hreyfing getur bætt líðan þína og ég er hér til að hvetja þig til að taka fyrsta skrefið. Þar sem ég hef sjálf glímt við kvíða og þunglyndi mæti ég þér af skilningi og styð þig með jákvæðni og hvatningu. Við byrjum nákvæmlega þar sem þú ert í dag og lærum að njóta vegferðarinnar. Saman gerum við hreyfingu að einhverju sem þú getur hlakkað til, með fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum sem auka styrk, hreyfigetu og liðleika. Við leggjum áherslu á að efla bæði líkamlega og andlega líðan þína.

Q&A

What do you do outside the gym?

Dansa, syngja, horfa á TV og skemmta mér með fjölskyldu og vinum.

Q&A

Favourite food?

Fahitas eða lamb

Q&A

Guilty pleasure?

Kardashians

About

Ég heiti Anna Claessen. Á daginn starfa ég sem markþjálfi og einkaþjálfari og á kvöldin skemmti ég fólki með Happy Studio. Frá 16 ára aldri hef ég hjálpað fólki að efla andlega og líkamlega líðan, bæði á Íslandi og erlendis.

Umsagnir

„Ég hefði ekki getað óskað mér betri þjálfara en Önnu. Ég hef fundið mikinn mun á mér, bæði líkamlega og andlega, og mér finnst gríðarlega mikilvægt að tekið sé tillit til andlegrar og tilfinningalegrar líðanar í þjálfun. Anna sýndi mér vandlega hvernig ætti að nota öll tækin og saman fundum við æfingar og teygjur sem hentuðu mér fullkomlega. Ég hef lengi glímt við þunglyndi og félagskvíða og hef aldrei kynnst þjálfara sem sýndi mér jafn mikinn skilning og Anna. Hún hafði trú á mér og ég fann að hún vildi gera allt sem hún gat til að hjálpa mér að ná árangri og líða vel í eigin skinni. Ég vissi að ég gæti treyst henni og þess vegna náði ég enn betri árangri en ég hafði búist við — og það á svo stuttum tíma.“

— G.R. Strom

„Anna er ótrúlega hvetjandi og styðjandi. Hún gætti þess alltaf að ég legði mig fram án þess að meiða mig eða auka á gömul meiðsli. Ég náði að byggja upp svo mikinn styrk á svæðum þar sem ég hélt í alvöru að það væri ekki hægt vegna meiðsla minna. Nálgun hennar á þjálfun er líka mjög heildræn. Hún leggur ekki aðeins áherslu á líkamlega heilsu heldur einnig andlega og tilfinningalega líðan!“

— Gabríela Auður

„Anna var alltaf full af orku og tilbúin að tala um allt milli himins og jarðar. Þegar hún tók að sér nýja áskorun kynnti hún sér málin vel og lagði sig alla fram um að manni liði vel og maður fyndi fyrir stuðningi.“

— Jakob Fjólar

Þjónusta í boði

  • Einkaþjálfun • Hópþjálfun • Markþjálfun • Fjarþjálfun

Education

  1. 2026 ADHD, LGBTQ+, Einhverfumarkþjálfun
  2. 2025 Somatic og IFS partavinna
  3. 2024 Áfallajóga
  4. 2023 Stafrænn markaðssérfræðingur
  5. 2022 DBT, Gestalt, Yin Yoga
  6. 2021 Hot Yoga kennaranám og Bandvefslosun
  7. 2020 : Hamingju-, meðvirkni- og sambandsmarkþjálfun , einkaþjálfaraskólinn,
  8. Absolute Training - og Yoga Nidra Kennaranám
  9. 2019 NLP, HAM (CBT) og RTT meðferðardáleiðsla
  10. NBI, Reiki og Gong tónheilun
  11. 2018 Markþjálfun frá HR
  12. 2012 Associates í Sönglist frá MI, L.A., USA
  13. 2008 B.A: Fjölmiðlafræði
  14. 2004 Stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands
  15. Aqua Zumba, Zumba Gold, Zumbini, Zumba Kids, Zumba Toning, Zumba Sentao, STRONG Nation and Jallabina
  16. Annað:
  17. Rauða Kross Skyndihjálp

Specialties

  • Strength
  • General fitness and health
  • Flexibility and mobility
  • Beginners
  • Women
  • Seniors (60+)
  • Injury rehabilitation
  • Mental health and stress
  • Mindset and habits
Anna · Laugar +4Get in touch