
Sérhæfing
Ég hjálpa fólki á aldrinum 30+ að missa fitu, byggja vöðva & styrk og komast í form sem passar við þeirra líf.
Spurt og svarað
Hvað gerirðu utan salarins?
Heilsa, líkamsrækt, íþróttir, tónlist, ferðalög og kvikmyndir
Spurt og svarað
Uppáhalds matur?
Gott nautakjöt með sætum kartöflum og sósu
Spurt og svarað
Guilty pleasure?
Ískalt malt og appelsín
Um þjálfarann
Ég hef hjálpað fólki að ná betri heilsu og árangri síðan 2021 með markvissri styrktarþjálfun, næringarráðgjöf og uppbyggingu góðra venja.
Ég legg sérstaka áherslu á að hjálpa uppteknum einstaklingum að missa fitu, byggja upp styrk og vöðvamassa án þess að æfingarnar taki yfir daglegt líf.
Viðskiptavinir mínir hafa náð fjölbreyttum árangri, allt frá því að byggja upp vöðvamassa og bæta styrk yfir í að missa allt að 20 kg.
Markmiðið mitt er einfalt: Að hjálpa þér að ná árangri sem endist.
Menntun
- BSc í Íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík
- MSc in strength & conditioning frá Catholic University of Murcia á Spáni
Sérsvið
- Þyngdartap
- Styrkur
- Vöðvamassi
- Byrjendur
- Eldri (60+)
- Pör og smáhópar
- Næringarráðgjöf
- Hugarfar og venjur
- Lífsstílssjúkdómar
Næsti kafli er þinn.



