Opnir tímar

Laugaskokk

tímar í vikunni
4
stöðvar
1
ákefð af 5
3

Um tímann

Laugaskokk er hlaupahópur fyrir iðkendur á öllum getustigum, allt frá byrjendum og "lullurum" upp í spretthlaupara og maraþonhlaupara. Hópurinn samanstendur af hlaupurum á öllum aldri, með mismunandi markmið og hvata og því eiga allir að finna sig í hópnum.

Leiðbeinendur hópsins eru Guðmundur Kristinsson og Halla Björg Þórhallsdóttir.

Mánudagar kl. 17:30 - Sprettæfing

Góð æfing fyrir þau sem eru að byrja að hlaupa eða að mæta í fyrsta sinn. Æfingin byrjar á sameiginlegri upphitun og síðan taka við sprettæfingar sem geta verið stuttir sprettir, langir sprettir eða brekkusprettir. Í lokin er niðurskokk og léttar teygjur í Laugum.

Misjafnt er hvað hópurinn hleypur langt en það er auðvelt að breyta vegalengdinni fyrir þau sem eru óvön.

Miðvikudagar kl. 17:30 - Tempóæfing

Hlaupnir eru 5-13km þar sem byrjað er á rólegri upphitun, og hluti vegalengdarinnar svo farinn á vaxandi hraða.

Laugardagar kl. 09:00 - „Langi túrinn“

Farið er langt og rólega, allt eftir getu hvers og eins. Stundum er hlaupið frá öðrum World Class stöðvum en upplýsingar um það koma þá alltaf fram á Facebook síðu hópsins.

Mánudagar kl. 18:40 teygjutími í sal 3.

Það eina sem þarf er að mæta og prófa!

Hvar og hvenær

Mynd af þjálfaraTímiÞjálfariKlukkanStöðBókun
LaugaskokkGuðmundur Kristinsson17:30 – 18:30MánLaugarLaugarSjá tímatöflu
LaugaskokkGuðmundur Kristinsson18:40 – 19:10MánLaugarLaugarSjá tímatöflu
LaugaskokkGuðmundur Kristinsson17:30 – 18:30MiðLaugarLaugarSjá tímatöflu
LaugaskokkGuðmundur Kristinsson09:00 – 10:00LauLaugarLaugarSjá tímatöflu