Opnir tímar
Laugaskokk
- tímar í vikunni
- 4
- stöðvar
- 1
- ákefð af 5
- 3
Um tímann
Hentar byrjendum
Laugaskokk er hlaupahópur fyrir iðkendur á öllum getustigum, allt frá byrjendum og "lullurum" upp í spretthlaupara og maraþonhlaupara.
Hópurinn samanstendur af hlaupurum á öllum aldri, með mismunandi markmið og hvata og því eiga allir að finna sig í hópnum.
Leiðbeinendur hópsins eru Guðmundur Kristinsson og Halla Björg Þórhallsdóttir.
Mánudagar kl. 17:30 - Sprettæfing
Góð æfing fyrir þau sem eru að byrja að hlaupa eða að mæta í fyrsta sinn. Æfingin byrjar á sameiginlegri upphitun og síðan taka við sprettæfingar sem geta verið stuttir sprettir, langir sprettir eða brekkusprettir. Í lokin er niðurskokk og léttar teygjur í Laugum.
Misjafnt er hvað hópurinn hleypur langt en það er auðvelt að breyta vegalengdinni fyrir þau sem eru óvön.
Miðvikudagar kl. 17:30 - Tempóæfing
Hlaupnir eru 5-13km þar sem byrjað er á rólegri upphitun, og hluti vegalengdarinnar svo farinn á vaxandi hraða.
Laugardagar kl. 09:00 - „Langi túrinn“
Farið er langt og rólega, allt eftir getu hvers og eins. Stundum er hlaupið frá öðrum World Class stöðvum en upplýsingar um það koma þá alltaf fram á Facebook síðu hópsins.
Mánudagar kl. 18:40 teygjutími í sal 3.
Það eina sem þarf er að mæta og prófa!