
Sérhæfing
Styrktarþjálfun og úthaldsþjálfun
Ég hef mikla reynslu af fólki sem er að koma sér af stað eftir kyrrsetu. Vinn með þeim markmiðaáætlun og passa upp á alla hreyfigetu. Legg áherslu á að æfingar séu framkvæmdar rétt og fer vel yfir tilganginn með æfingaplönunum. Hef hjálpað fólki sem vill styrkjast, léttast, auka úthald eða hreinlega að komast í alhliða betra form. Hef þjálfað CrossFit og rekið CrossFit stöð í 10 ár og með mikla reynslu af fólki með mismunandi þarfir og væntingar og sérþekkingu á lyftingum, bæði ólympískum og kraftlyftingum.
01 · Spurt og svarað
Hvað gerirðu utan salarins?
Heilsurækt, fjallgöngur, ferðalög og eldamennska. Uppáhaldstónlist: Alæta á tónlist
02 · Spurt og svarað
Uppáhalds matur?
Lasagne
03 · Spurt og svarað
Guilty pleasure?
Súkkulaði www.helgafit.is
Um þjálfarann
Reynsla: Hef stundað líkamsrækt alla ævi. Hljóp mikið á árunum 2003–2012, heil og hálf maraþon, Laugaveginn og millivegalengdir og var á lista yfir topp 20 kvenna í öllum vegalengdum árið 2004. Byrjaði CrossFit 2010 og keppti 3x á Evrópuleikunum. Æfði Kraftlyftingar 2014–2016, varð Íslandsmeistari í opnum flokki í bæði klassískum og búnaðarkraftlyftingum. Keppti á EM og HM í opnum flokki á þessu tímabili. Átti mörg Íslandsmet í öllum lyftum og vann brons á EM í bekkpressu. Hef tekið mikið að mér einkaþjálfun síðustu 8 ár og smærri hópa með mjög góðum árangri. Hef verið með meðgöngu- og mömmutíma í Functional Fitness. Hef tekið að mér fólk sem vill komast í Lögregluskólann og hafa þau alltaf staðist inntökuprófið. Er keppnismanneskja í grunninn og tek þá ástríðu með mér í þjálfunina á öðrum. Býð einnig upp á fjarþjálfun, sniðin að þörfum hvers og eins.
Menntun
- Textílhönnuður úr Listaháskóla Íslands
- Level 1 CrossFit Þjálfun
- Þjálfun og æfingabúðir í Kraftlyftingum hjá Dietmar Wolf, einum fremsta kraftlyftingaþjálfara heims, æfingaáætlanagerðir og hreyfiflæði.
- Helgarnámskeið í Ólympískum lyftingum og kennslufræði.
Næsti kafli er þinn.
Fleiri á stöðinni: Tjarnarvellir



