Í gildi: · Tilkynning

Lófaskanninn tekur við

Lófaskanninn tekur við af augnskannanum. Svona skráirðu lófann.

Lófaskanninn tekur við af augnskannanum. Sjáðu hvar hann er kominn.

Hvernig skrái ég lófann?

1. Sæktu ZEESAM-appið í App Store eða Google Play og búðu til aðgang. 2. Sýndu QR-kóðann úr appinu við skannann í afgreiðslunni. 3. Haltu lófanum um 10 cm frá skannanum. 4. Sláðu inn kennitöluna á skannanum. Þá er skráningin virk. Eftir það þarftu hvorki app né síma: þú heldur lófanum yfir skannanum við hliðið og gengur inn.

Hvar get ég skráð lófann?

Á stöðvum þar sem lófaskanninn er kominn. Sjáðu hvar hann er kominn. Á stöðvum án afgreiðslu verður skráningarskanni þar sem þú klárar skráninguna með appinu, án aðstoðar.

Ég finn ekki appið

Leitaðu að „ZEESAM“ í App Store eða Google Play. Ef appið birtist ekki í símanum þínum, sendu okkur póst.

SMS-kóðinn berst ekki

Við vitum af þessu og ZEESAM vinnur að lausn. Reyndu aftur síðar, eða sendu okkur póst.

Hvað er geymt?

Dulkóðað lífkennasnið, aldrei mynd af lófanum. Sniðið fylgir aðganginum þínum í ZEESAM-appinu.

Hvernig eyði ég skráningunni?

Í ZEESAM-appinu.

Skráist mæting í tíma með lófanum?

Já, eins og með augnskannanum, þegar þú ferð í gegnum hliðið.

Þarf ég að skrá lófann?

Nei. Þú getur líka fengið aðgang í afgreiðslunni.

Allt um lófaskannann.