Pilates Mömmur
Pilates Mömmur er viðbót við World Class kortið.
PilatesClub · Mömmur
Byrjaðu hvenær sem er
Pilates fyrir verðandi og nýbakaðar mæður. Veldu áskrift eða stakan mánuð, með eða án World Class korts.
Pilates Mömmur er viðbót við World Class kortið.
Um Mömmur
Pilates Mömmur eru Mat Pilates tímar fyrir nýbakaðar mæður og börnin þeirra sem vilja koma sér af stað eftir barnsburð og verðandi mæður sem vilja stunda hreyfingu á meðgöngunni.
Tímarnir eru hannaðir til að styrkja kvið, grindarbotn og djúpvöðva líkamans, bæta líkamsvitund og almenna líðan. Æfingarnar fara fram á dýnu og er aðstaða fyrir börnin inni í salnum svo mæður geti haft þau nálægt sér á meðan æfingu stendur. Pilates Mömmu meðlimir hafa einnig aðgang að almennum Reformer Pilates tímum hjá Pilates Club.
Tímarnir eru kenndir í Laugum á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 9:30 og eru 50 mínútur. Ekki er um námskeið að ræða og því hægt að byrja hvenær sem er.
Hægt er að sjá tíma og bóka sig í Abler appinu. Nauðsynlegt er að skrá sig í tíma.