Jafnlaunastefna
Laugar ehf. hefur innleitt jafnlaunakerfi skv. ÍST 85:2012 á grundvelli 7. gr. laga nr. 150/2020 um jafnlaunavottun sem nær til alls starfsfólks með jafnlaunastefnu þessa sem grunn. Tilgangur með jafnlaunakerfi er að tryggja jafnrétti og jafna stöðu kynja innan Laugar ehf. með það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsfólks til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.
Jafnréttisáætlun þessi minnir stjórnendur og allt starfsfólk á mikilvægi þess að öll séu jöfn og að meta eigi þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og hæfni einstaklinga án tillits til kyns.
Jafnlaunastefna World Class er að fylgja kjarasamningum.
Mikilvægt er að fylgja meginreglunni um að öll njóti sömu tækifæra:
- kjör eru ákveðin með sama hætti fyrir sömu, sambærileg eða jafn verðmæt störf
- starfsfólk hefur sömu tækifæri til menntunar/endurmenntunar/símenntunar/námskeiða
- öllum kynjum stendur til boða að sækja um störf hjá okkur
- við finnum leiðir til að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf
- við líðum ekki ofbeldi; hér undir fellur meðal annars kynbundið/kynferðislegt ofbeldi/áreitni
Jafnlaunakerfið er undir stöðugum umbótum og eftirliti. Komi upp frábrigði er brugðist við þeim.
Í jafnlaunakerfinu eru sett fram jafnlaunamarkmið og þau rýnd og endurskoðuð samkvæmt verklagsreglum þar að lútandi.
Jafnlaunakerfið er skjalfest á innra neti World Class.
Jafnlaunastefnan er aðgengileg öllu starfsfólki á innra neti World Class.
Jafnlaunastefnan er aðgengileg almenningi á heimasíðu World Class.
Ertu með ábendingu? Sendu okkur línu á worldclass@worldclass.is