FLONI

14,990 ISK

Floni Eau De Parfum er samstarfsverkefni tónlistarmannsins Flona og Laugar Spa sem unnið hefur verið síðasta eina og hálfa árið.

Útgangspunktur Flona þegar hann ímyndaði sér ilminn voru m.a. ýkt mótvægi dimmra vetrarnótta og fallegra sumarkvölda, rómantík skemmtanalífsins og látlausra samkoma, fullur af mystík, spennu, kynþokka og frelsi líkt og tónlist hans er.

Ilmnóturnar eru samblanda af krydduðum og sætum nótum eins og kardimommu, patchouli, greipaldin og frosnu lavender sem mynda saman mjög fókuseraðan og dulkenndan ilm.

Floni Eau De Parfum er nútíma „rakspíri“ fyrir öll kyn og aldur.

Similar products

  • FACE E VITAMIN BOOSTER

    FACE E VITAMIN BOOSTER

    5,990 ISK
  • BODY OIL

    BODY OIL

    4,990 ISK
  • Royal

    Royal

    14,990 ISK
  • BODY HEALING BALM

    BODY HEALING BALM

    6,990 ISK