Næringarráðgjöf

Árangur í heilsurækt byggir á samspili hugar, líkama og næringar. Rétt mataræði skapar stóran hluta árangursins.

Næringarráðgjöf

Það er viðurkennt að árangur í heilsurækt byggir á samspili hugar og líkama. Einnig vitum við að holl næring er mikilvæg svo líkaminn starfi eðlilega og rétt mataræði skapar stóran hluta árangursins á móti hreyfingunni.

World Class býður upp á næringarráðgjöf sem byggir á 30 mínútna viðtali og eftirfylgni eftir þörfum með matardagbók og styttri viðtölum. Einnig er hægt að koma í reglubundið eftirlit þar sem ummál og fituprósenta er mæld og árangur metinn frá mánuði til mánaðar með útreikningum á hlutfalli vöðva og fitu. Með því má sjá hvort æfingarnar séu að skila tilætluðum árangri.

Mataræði skiptir gríðarlega miklu máli til þess að ná hámarksárangri samhliða líkamsrækt og við hvetjum þig til þess að bóka tíma ef þig vantar aðstoð við að betrumbæta mataræðið þitt.

Fríða Rún býður upp á viðtöl og mælingar.

Næringarráðgjöf/viðtal: 6.000 kr. Mælingar fyrir korthafa World Class: 2.800 kr. Mælingar fyrir þá sem eru ekki korthafar World Class: 3.470 kr.

Vinsamlegast hafið samband í síma 898 8798 eða með tölvupósti á frida@heilsutorg.is varðandi tíma í mælingar og næringarviðtöl.

Fríða Rún Þórðardóttir

Næringarráðgjafi

Fríða Rún Þórðardóttir er fædd 13. febrúar 1970 í Reykjavík.

Námsferill:

  • Stúdentspróf frá Náttúrufræðibraut Menntaskólans við Sund 1990.
  • BS-próf í næringarráðgjöf 1993 og MS-próf í næringarfræði frá The University of Georgia 1996.
  • IOC diploma í næringu íþróttafólks, apríl 2006.
  • Mjög iðin við eigin endurmenntun innanlands og erlendis.

Helstu störf:

  • Landspítali Háskólasjúkrahús, síðan vorið 1996. Starfa í eldhúsi LSH sem klínískur næringarfræðingur með ábyrgð á sér- og ofnæmisfæði, utanumhaldi um innihaldslýsingar og næringargildi, umsjón með nemum og heimsóknum í eldhúsið, tengiliður við lyflæknissvið LSH auk annarra verkefna.
  • Heilsutorg.com vefsíða um heilsu, eigandi og ritstjórn, 2013
  • Orange skrifstofuhótel, meðeigandi og stjórnarformaður, 2014
  • Hlaupahópur Víkings, þjálfari frá júní 2015
  • Sjálfstætt starfandi næringarfræðingur í World Class í Laugum (síðan 1997)
  • Held fjölda fyrirlestra á ári hverju fyrir fyrirtæki, hópa og íþróttafélög síðan 1996. Kenni á námskeiðum t.d. fyrir KSÍ og World Class og námskeið um eldun ofnæmisfæðis á vegum AO
  • Starfa fyrir fyrirtæki í matvælaiðnaði varðandi næringarútreikninga og gerð á innihaldslýsingu. Aðstoð við úttekt á mötuneyti starfsmanna sem og við að stuðla að heilsueflingu starfsmanna
Fríða Rún Þórðardóttir