· Frétt
Takk fyrir frábæra vorönn!
Þakkir til allra fyrir frábæra vorönn. Myndir og myndbönd frá vorsýningunni eru komin á netið.
Vorönnin er búin og við erum afar stolt af öllum dönsurunum okkar. Gleði og jákvæðni einkenndu önnina og við sáum stóra framför hjá hópum á öllum aldri.
Fimm vikna sumarnámskeið hefst 28. apríl. Skráning fer fram á Sportabler. Athugið að námskeiðið er undir 10 vikum og er því ekki gjaldgengt í frístundastyrk. Styrkinn má hins vegar nýta á haustönninni.
Myndir og myndbönd frá vorsýningunni má finna á YouTube-rás skólans, á Instagram og á Facebook.
Hafðu samband
dwc@worldclass.is