· Tilkynning
DWC Next Level er nýtt prógram
DWC Next Level. 11 vikna krefjandi prógram fyrir lengra komna dansara, með Hafdísi Eyju.
DWC Next Level er nýtt og krefjandi prógram fyrir allra dansþyrstustu dansarana okkar. Prógrammið er 11 vikur með Hafdísi Eyju, sem hefur síðustu fjögur ár verið á flakki um Evrópu með ýmsum stjörnukoreógröfum og dansverkefnum.
Tímarnir leggja áherslu á nákvæmar grunnæfingar, tækni og útfærslu á ólíkum dansstílum: sviðsmennsku, koreógrafíu, þol, dýnamík, takt og persónulegan stíl.
Tímar eru á föstudögum kl. 17:00–19:00 í World Class Smáralind. Prufa er föstudaginn 17. janúar á sama tíma. Aldur 13 ára og eldri (fædd 2012 eða fyrr). Verð: 54.990 kr. Hægt er að nýta frístundastyrk.
Hafðu samband
dwc@worldclass.is