· Viðburður
DANCEOFF Dansbikar laugardaginn 25. október
DANCEOFF snýr aftur. Dansakeppni Dansstúdíó World Class í Tjarnarbíói laugardaginn 25. október.
Dansstúdíó World Class heldur DANCEOFF dansakeppnina öðru sinni eftir margra ára hlé. Keppnin fer fram laugardaginn 25. október í Tjarnarbíói.
Keppt er bæði í einstaklings- og hópaflokki. Þátttakendur semja eigin dansa, velja tónlist og hanna búninga. Markmiðið er að gefa dönsurum tækifæri til að vaxa sem listamenn og þróa eigin stíl.
Sólódansar skulu vera 75–90 sekúndur að lengd, hópatriði 90–120 sekúndur. Lágmark tveir og hámark átta í hópi. Skráningargjald: 3.500 kr. í sólóflokki og 4.000 kr. í hópaflokki.
Hafðu samband
dwc@worldclass.is