DWC Danskeppni

Starts
17 October 2026

DWC Danskeppni

Next courses

Tjarnarbíó Theater, Tjarnargata, Reykjavík, Iceland

About the course

DANCEOFF DANSKEPPNI

DANCEOFF í Tjarnarbíó, laugardaginn 17. október.

Danskeppni fyrir nemendur DWC.

Keppt er til verðlauna í tveimur flokkum: Einstaklingskeppni (Solo) Hópakeppni (2-6 manns í hóp)

Nemendum er að sjálfsögðu leyfilegt að keppa í báðum flokkum.  Sé keppt í báðum flokkum þá þarf að skrá dansarann í báða flokka og greiða skráningargjald í báðum.

ALDURSFLOKKUR Keppt er í þremur aldurflokkum: 9-11 ára (2015-2017) 12-14 ára (2012-2014) 15-18 ára (2008-2011)

ATRIÐI Nemendur sýna frumsaminn dans og sjá alfarið um alla þá þætti sem snúa að því að koma fram með fullbúið dansatriði. Þeirra eigin sköpun. Hér er átt við alla umgjörð dansatriðisins, s.s. hugmyndavinnu, tónlist, útlit og klæðnað.

MARKMIÐ Hvetja nemendur til þess að setja saman og koma fram með sína eigin kóreógrafíu, hvort sem það er solo dans eða í hópakeppni. Með þessu móti öðlast dansarar aukinn þroska sem listamenn og hugmyndasmiðir og víkka sjóndeildarhringinn í leiðinni. Þetta er hollt og hvetjandi fyrir alla dansara.

FYRIRKOMULAG Keppt er í einstaklings- og hópakeppni (sami einstaklingur getur tekið þátt bæði í einstaklings- og hópakeppni)

Í hópakeppni eru 2-6 manns saman í hóp. Atriði verður að vera frumsamið af nemendum.

LENGD ATRIÐA Einstaklings (Solo): 75-90 sekúndur Hópur: 90-120 sekúndur

Í hópakeppni eru 2-6 manns saman í hóp.

SKRÁNING Skráning er hafin og henni lýkur sunnudaginn 11. október á miðnætti. Tónlist og öllum öðrum upplýsingum þarf að skila inn fyrir miðnætti, mánudaginn 12. október. SKIL Á GÖGNUM Skila þarf öllum gögnum á netfangið dwc@worldclass.is. Tónlist skal skila á .mp3 eða .wav format-i. Engu öðru format-i.

SKRÁNINGARGJALD 4.500 kr. fyrir hvern einstakling í einstaklingskeppni (solo). 5.000 kr. fyrir hvern einstakling í hópakeppni.

Ef einstaklingur ætlar sér að taka þátt í báðum flokkum, þ.e. einstaklings- og hópakeppni, þá þarf að greiða skráningargjald í báða flokka.

Skráning er bindandi og skráningargjald fæst ekki endurgreitt.

Kids and teens

50% off a second course.

Sign your child up for two courses in the same term and get 50% off the cheaper one.

The discount is applied automatically at checkout and applies to all Dansstúdíó kids' and teens' courses within the same term.