DWC Danskeppni
- Hefst
- 17. október 2026
Um námskeiðið
DANCEOFF DANSKEPPNI
DANCEOFF í Tjarnarbíó, laugardaginn 17. október.
Danskeppni fyrir nemendur DWC.
Keppt er til verðlauna í tveimur flokkum: Einstaklingskeppni (Solo) Hópakeppni (2-6 manns í hóp)
Nemendum er að sjálfsögðu leyfilegt að keppa í báðum flokkum. Sé keppt í báðum flokkum þá þarf að skrá dansarann í báða flokka og greiða skráningargjald í báðum.
ALDURSFLOKKUR Keppt er í þremur aldurflokkum: 9-11 ára (2015-2017) 12-14 ára (2012-2014) 15-18 ára (2008-2011)
ATRIÐI Nemendur sýna frumsaminn dans og sjá alfarið um alla þá þætti sem snúa að því að koma fram með fullbúið dansatriði. Þeirra eigin sköpun. Hér er átt við alla umgjörð dansatriðisins, s.s. hugmyndavinnu, tónlist, útlit og klæðnað.
MARKMIÐ Hvetja nemendur til þess að setja saman og koma fram með sína eigin kóreógrafíu, hvort sem það er solo dans eða í hópakeppni. Með þessu móti öðlast dansarar aukinn þroska sem listamenn og hugmyndasmiðir og víkka sjóndeildarhringinn í leiðinni. Þetta er hollt og hvetjandi fyrir alla dansara.
FYRIRKOMULAG Keppt er í einstaklings- og hópakeppni (sami einstaklingur getur tekið þátt bæði í einstaklings- og hópakeppni)
Í hópakeppni eru 2-6 manns saman í hóp. Atriði verður að vera frumsamið af nemendum.
LENGD ATRIÐA Einstaklings (Solo): 75-90 sekúndur Hópur: 90-120 sekúndur
Í hópakeppni eru 2-6 manns saman í hóp.
SKRÁNING Skráning er hafin og henni lýkur sunnudaginn 11. október á miðnætti. Tónlist og öllum öðrum upplýsingum þarf að skila inn fyrir miðnætti, mánudaginn 12. október. SKIL Á GÖGNUM Skila þarf öllum gögnum á netfangið dwc@worldclass.is. Tónlist skal skila á .mp3 eða .wav format-i. Engu öðru format-i.
SKRÁNINGARGJALD 4.500 kr. fyrir hvern einstakling í einstaklingskeppni (solo). 5.000 kr. fyrir hvern einstakling í hópakeppni.
Ef einstaklingur ætlar sér að taka þátt í báðum flokkum, þ.e. einstaklings- og hópakeppni, þá þarf að greiða skráningargjald í báða flokka.
Skráning er bindandi og skráningargjald fæst ekki endurgreitt.
Krakkar og unglingar
50% afsláttur af öðru námskeiði.
Skráðu barnið þitt á tvö námskeið í sömu önn og fáðu 50% afslátt af verði þess sem kostar minna.
Afslátturinn er reiknaður sjálfkrafa við greiðslu og gildir á öll krakka- og unglinganámskeið hjá Dansstúdíó innan sömu starfsannar.
Hafðu samband
dwc@worldclass.is