Spinning
Það eru fáar hreyfiaðferðir sem brenna jafn miklu og spinning. Spinning í World Class er byggt upp á skorpuþjálfun sem er frábær leið til þess að byggja upp aukið þol á skömmum tíma og brenna fullt af hitaeiningum. Við erum með LeMond spinning hjól sem eru talin bestu og öruggustu spinninghjólin á markaðnum í dag. Ef þú vilt hreyfa þig við dúndrandi góða tónlist þá er spinning fyrir þig.
World Class býður upp á gríðarlegt úrval spinningtíma, allt frá 45 mínútna morguntímum og hádegistímum til 90 mínútna tíma á laugardögum. Við höfum frábæra kennara sem gera sitt besta í að hafa tímana fjölbreytta og við allra hæfi.
Spinning er kennt í Laugum, á Seltjarnarnesi, í Spöng og í Ögurhvarfi.
ATHUGIÐ - það þarf að hafa miða í ALLA spinningtíma í Laugum. Miðar afhendast 30 mínútum fyrir hvern tíma.

