Hot Yoga

Heitt jóga er ákveðin samsetning af jógastöðum sem gerðar eru í upphituðum sal helst í 37°C. Hitinn gerir það að verkum að maður hitnar fyrr upp í líkamanum og verður þar af leiðandi sveigjanlegri og kemst betur inn í stöðurnar og svo á sér líka stað mikil uppgufun og losun úrgangsefna eða detox þar sem fólk svitnar yfirleitt vel í þessum tímum.

Stöðurnar í þessu prógrami eru allar úthugsaðar sem styrktaræfingar í kringum hrygginn og tekið er á öllum vöðvaflokkum jafnt. Mikil áhersla er lögð á hrygginn og alltaf unnið út frá honum. Þetta prógram hefur ákveðinn lækningarmátt og hefur læknað hnévandamál og bakvandamál.

Heitt yoga var upprunalega þróað af Bikram sem er vel þekktur og virtur í yoga geiranum. Bikram varð einmitt fyrir slysi þegar hann var 17 ára og honum var sagt að hann ætti ekki eftir að geta gengið aftur út af slæmum hnémeiðslum en hot yoga kom honum til bjargar.

Hot Yoga er kennt í World Class í Laugum og á Seltjarnarnesi og er ýmist í 60 eða 90 mínútur.

Mjög mikilvægt er að hafa meðferðis stórt handklæði til að breiða yfir dýnuna þar sem þátttakendur svitna mikið og svitinn getur gert dýnurnar sleipar ef ekkert handklæði er á þeim. Hægt er að leigja handklæði í afgreiðslu World Class á 400 kr.

Hot Yoga tímarnir í World Class eru OPNIR þ.a. korthafar þurfa ekki að greiða sérstaklega fyrir tímana eins og tíðkast á öðrum heilsuræktarstöðum á Íslandi

Fremsti Hot Yoga kennari landsins, Lana Vogestad er með heimasíðu http://www.glow.is/


Næstu Hot Yoga tímar

  • Fimmtudagur 6:30 Laugar
  • Fimmtudagur 17:20 Laugar
  • Fimmtudagur 19:00 Laugar
  • Föstudagur 12:00 Laugar
  • Laugardagur 11:00 Laugar
  • Sunnudagur 11:00 Laugar
  • Mánudagur 12:00 Laugar
  • Mánudagur 17:20 Seltjarnarnes
  • Mánudagur 19:00 Seltjarnarnes
  • Þriðjudagur 6:30 Laugar
  • Þriðjudagur 19:00 Laugar

Kennarar


Heilsurækt


Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica