Þjónusta

Barnagæsla

Barnagæsla er á 4 stöðvum hjá okkur og er hægt að sjá opnunartíma undir hverri stöð.


Laugum
Breiðholti
Tjarnarvöllum
Egilshöll

Reglur barnagæslu

Við biðjum viðskiptavini um að sýna starfsfólki þá virðingu að fara ekki fram á brot á þessum reglum.

  • Hvert stakt skipti kostar 420 kr og hægt er að kaupa 15 og 30 skipta kort í afgreiðslu. Barnagæsla er í öllum tilfellum greidd fyrirfram í afgreiðslu nema um gilt barnagæslukort sé að ræða (þá er merkt við í gæslunni sjálfri).
  • Hámarkstími fyrir hvert barn er 1,5 klukkustund.
  • 2 ára aldurstakmark er um helgar (afmælisdagur barns gildir). 
  • Virka daga er ekkert aldurstakmark.
  • Náist hámarksfjöldi í barnagæslu er starfsmanni heimilt að vísa fólki frá. Komi til þessa er hægt að fá vitneskju um það hvenær næsta pláss losnar miðað við gildandi tímamörk.
  • Ekki er leyfilegt að börn komi með né neyti matar eða drykkjar á meðan gæsla stendur yfir.
  • Nauðsynlegt er að koma með bleyjubörn þurr þar sem starfsfólki ber ekki skylda að skipta á börnum. Komi upp tilfelli þar sem slíkt telst nauðsyn er foreldri/forráðamaður kallaður upp. Skiptiaðstaða er ýmist í boði í barnagæslunni sjálfri eða í búningsklefa.
  • Æskilegt er að börn komi óþreytt til okkar og ekki er hægt að ætlast til að starfsfólk svæfi börn. Viðskiptavinum gefst þó kostur á að koma með sofandi barn og starfsfólk okkar hlustar eftir því og sinnir ef það vaknar.

Barnagæslan er ávallt læst milli þess sem hún er opin okkar viðskiptavinum og geta börn því ekki verið þar að leik utan opnunartíma. Viljum benda foreldrum á barnahorn okkar í öðrum stöðvum vilji þeir nýta slíka þjónustu.

ATH! Greiða þarf fyrir sundferðir barna 6 ára og eldri í afgreiðslu World Class þegar korthafar taka þau með í sund. Einnig þurfa börn að nota almenna búningsklefa, þ.e. ekki Baðstofu klefa.

Barnahorn

Barnahorn eru á stöðvunum okkar í Vatnsmýri, Mosfellsbæ, Ögurhvarfi og við Strandgötu Akureyri.

Barnahorninu eru fullkomin fyrir börn sem geta leikið sér án eftirlits. Þar er boðið upp á leikföng og sjónvarp sem börnin geta dundað sér við á meðan foreldrar skreppa í sín leiktæki.

Reglur barnahorns:
Aðgangur að barnahorni er viðskiptavinum World Class í boði þeim að kostnaðarlausu. Viðskiptavinir bera alla ábyrgð á sínum börnum ásamt þeirra gjörðum. Barnahornið er einungis ætlað fyrir eldri börn sem mögulegt er að skilja eftir ein án eftirlits í skamman tíma. Leyfilegt er að nota leikföng, DVD spilara og sjónvarp svo lengi sem gengið er vel frá eftir börnin. Ekki er leyfilegt að börn komi með né neyti matar eða drykkjar á meðan á dvöl þeirra í barnahorni stendur.