Við mælum með að byrja dekrið í Betri stofunni áður en farið er í Laugar Spa saltnudd. Saltnuddið er einstök upplifun sem vinnur gegn vökvasöfnun og linar verki í vöðvum og liðum. Eftir nuddið er léttur málsverður með vínglasi eða ávaxtasafa borinn fram í veitingastofu Betri stofunnar. Næst er Lúxus Laugar Spa andlitsbað sem sérsniðið er að þörfum hvers og eins. Það felur í sér góða hreinsun, maska og austurlenskt höfuðnudd. Að lokum er framkvæmd hand- eða fótsnyrting þar sem neglur og naglabönd fá snyrtingu og nudd.
Innifalið:
- Laugar Spa saltnudd
- Léttur málsverður með vín- eða djúsglasi í veitingastofu Betri stofunnar
- Lúxus Laugar Spa andlitsbað þar sem húðin er hreinsuð og borinn á hana maski
- Austurlenskt höfuðnudd
- Létt hand- eða fótsnyrting þar sem naglaböndin eru snyrt og nudduð
- Aðgangur að Betri stofunni
Lengd: hálfur dagur