Berglind Elíasdóttir
Ég kenni hóptíma og námskeið í World Class á Selfossi og hef starfað þar frá opnun 2016. Ég er uppalin á Egilsstöðum en hef búið á Selfossi frá 2010.
Menntun:
- Háskóli Íslands; M.Ed. í Íþrótta- og heilsufræði (2016)
- Háskóli Íslands; BSc. í Íþrótta- og heilsufræði (2013)
- Kennsluréttindi í grunn- og framhaldsskóla
Námskeið:
- Einkaþjálfaraskóli World Class, einkaþjálfari (2008)
- Fit Pilates Instructor Training (2009)
- Les Mills Body Pump Instructor (2009)
- Skyndihjálp og björgun - Rauði kross Íslands (á 2 ára fresti frá 2006)
- Skyndihjálparnámskeið Rauða kross Íslands (á 3-4 ára fresti frá 2004)
- Fjölmörg þjálfaranámskeið hjá fimleikasambandi Íslands og erlendis. (2003-2010)
Reynsla:
- Hef þjálfað börn og unglinga í ýmsum íþróttagreinum (aðallega fimleika) frá unglingsaldri.
- Kenndi íþróttir og sund í grunnskóla ásamt því að kenna íþróttir í leikskóla.
- Hef meira en 10 ára reynslu í líkamsræktarkennslu. Kennt þar á meðal hóptíma, verið með líkamsræktarnámskeið, tekið að mér einkaþjálfun og kennt vatnsleikfimi.
Sérhæfing:
- Í meistaranámi mínu sérhæfði ég mig í þjálfun eldri aldurshópa og skrifaði meistaraprófsritgerðina: Þjálfun, leikni og hæfni. - Grunnur að markvissri heilsurækt eldri aldurshópa. Með leiðsögn frá Dr. Janusi Guðlaugssyni.
- Ég hef einnig áhuga á allri sérhæfðir heilsuþjálfun t.d. fyrir verðandi og nýbakaðar mæður.
Áhugamál:
- Ég hef gaman af allri útivist og hreyfingu. Eyða tíma með fjölskyldu og vinum. Svo hef ég gaman af hannyrðum og kökuskreytingum. Uppáhalds árstími minn er haustið.
Tónlist:
- Ég hef mjög breiðan tónlistarsmekk, tónlistin sem ég nota í mínum tímum er oft sniðin að árstíðum eða viðburðum hverju sinni (jól, júró, sumar, þorri, hrekkjavaka o.fl.) í bland við sígild taktföst lög. Blanda af gömlu og góðu og nýju og fersku. Hef gaman af því að nota lög með jákvæðum boðskap sem gefur manni pepp inn í daginn.
Uppáhalds matur:
- Ýsa í raspi.
Guilty pleasure:
- Ísbúð Huppu sér um mitt „guilty pleasure“.
Uppáhalds quote:
- Gæfan fylgir góðri nennu.
- Just do it.
Facebook hópur fyrir Styrktarþjálfun 50+: https://www.facebook.com/groups/345075712635765/