Námskeið

Af hverju námskeið?

Ef þú vilt fá góða leiðsögn, hvatningu og stuðning í þéttum hópi fólks sem stefnir að sama marki eru námskeið World Class gott val.

Við bjóðum upp á yfir 100 fjölbreytt námskeið á hverju ári og allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi.

Ef þú ert ekki með kort í World Class þá greiðir þú fullt gjald fyrir námskeið. Korthafar frá afslátt af námskeiðum ef kortið er í gildi yfir námskeiðstímann.

Námskeið að hefjast

Innifalið í námskeiðunum okkar

Meðal þess sem fylgir í námskeiðum World Class er:

  • Aðgangur að öllum opnum tímum á öllum stöðvum World Class.
  • Aðgangur að öllum 18 stöðvum World Class.
  • Aðgangur að Laugardalslaug, Sundlaug Seltjarnarness, Breiðholtslaug, Árbæjarlaug, Lágafellslaug, Sundlaug Akureyrar, Sundlaug Hellu og Sundhöll Selfoss.
  • 10% afsláttur af öllum vörum og þjónustu snyrti- og nuddstofanna & Laugar Spa Reykjavík og Akureyri.
  • 20% afsláttur af stökum degi/skipti í Betri stofuna.