Algengar spurningar

Er boozt á öllum stöðvum?

Laugarbarinn býr til margar tegundir af boozti í Laugum. Drykk mánaðarins færðu líka í Egilshöll, Kringlunni, Smáralind, á Selfossi, Seltjarnarnesi, Skólastíg, Strandgötu Akureyri, Vatnsmýri og á Tjarnarvöllum.

Eruð þið með vatnsbrúsa?

Þú getur keypt vatnsbrúsa í afgreiðslunni. Drykkjarbrunnar eru líka í tækjasölunum.

Get ég leigt eða keypt lás?

Þú getur keypt lás í afgreiðslunni. Við leigjum líka lása. Þú greiðir fyrir leiguna en færð hluta til baka við skil gegn framvísun greiðslukvittunar.

Hvernig kemst ég í sund frá Laugum?

Þú notar klefana hjá okkur og ferð beint inn í sundlaugargarðinn eða innilaugina þaðan.

Hvert er aldurstakmarkið?

Aldurstakmarkið í tækjasal er 13 ára.

Þarf ég að bóka mig í tíma?

Já. Þú þarft að bóka þig í allflesta tíma. Bókaðu í tímatöflunni á worldclass.is eða í Abler-smáforritinu.

Er afsláttur fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega?

Öryrkjar fá 15% afslátt af kortum gegn framvísun skírteinis. Afslátturinn gildir ekki af 15 skipta kortum. Ellilífeyrisþegar fá 25% afslátt af árskortum og áskriftarsamningum sem veita aðgang milli kl. 08:00 og 16:00 á virkum dögum og ótakmarkaðan aðgang um helgar.

Fá korthafar afslátt í Baðstofuna?

Já. Korthafar fá 20% afslátt af stökum tíma í Baðstofunni.

Fylgir handklæði Baðstofukortinu?

Já. Sem Baðstofukorthafi færðu handklæði á öllum stöðvum World Class, nema á Dalshrauni og Ögurhvarfi.

Hvað er á pottasvæðinu á Tjarnarvöllum?

Á pottasvæðinu á Tjarnarvöllum eru einn heitur pottur og einn kaldur, þurrsauna og innrauður hitaklefi.

Hvað er á pottasvæðinu í Kringlunni?

Í Kringlunni er útipottasvæði með einum heitum potti og einum köldum. Einnig er sauna og innrauður hitaklefi.

Hvað er á pottasvæðinu í Smáralind?

Á pottasvæðinu í Smáralind eru einn heitur pottur og einn kaldur, blautsauna, þurrsauna og innrauður hitaklefi.

Hvað er á pottasvæðinu í Vatnsmýri?

Á pottasvæðinu í Vatnsmýri eru einn heitur pottur og einn kaldur, sauna og innrauður hitaklefi.

Hvað er í Baðstofunni á Seltjarnarnesi?

Á Seltjarnarnesi eru tvær þurrsaunur, ein blautsauna, fótabað og afslöppunarbekkir. Baðstofan er innifalin í Baðstofukortum.

Hvað er í Baðstofunni í Laugum?

Í Baðstofunni eru sex misheitar saunur, blautar og þurrar, þar af tvær innrauðar. Hver sauna hefur sinn ilm og þema, þar á meðal sítrónu, piparmyntu og lavender. Þú getur upplifað fugla- og lækjarnið, stjörnuhvolfið, sólarupprás eða austurrísku bjálkakofana.

Hvað kostar fyrir hópa?

Hópaverðið í Baðstofuna miðast við 10 manns eða fleiri. Sendu fyrirspurnir og bókanir á worldclass@worldclass.is.

Hver er munurinn á barnagæslu og barnahorni?

Barnagæsla er mönnuð. Starfsfólk sér um barnið á meðan þú æfir og foreldri greiðir fyrir hvert skipti. Barnahorn er ómannað. Þar leikur barnið sér sjálft á ábyrgð foreldris á meðan þú æfir. Korthafar World Class fá frían aðgang.

Hvað kostar barnagæsla?

Stakt skipti kostar 440 kr. Þú getur líka keypt 15 eða 30 skipta kort í afgreiðslu á þeim stöðvum þar sem barnagæsla er. Skiptakort eru án gildistíma. Þú greiðir barnagæsluna fyrirfram í afgreiðslu nema þú sért með gilt barnagæslukort. Þá er merkt við skiptið í gæslunni sjálfri.

Hvaða aldur er í barnagæslu?

Virka daga er ekkert aldurstakmark. Um helgar er 2 ára aldurstakmark og afmælisdagur barnsins gildir. Fjöldi barna í gæslunni er takmarkaður. Náist hámarksfjöldi getur starfsfólk þurft að vísa frá, en þá færðu að vita hvenær næsta pláss losnar.

Hve lengi má barn vera í gæslu?

Miðað er við að barn sé ekki lengur en 1,5 tíma í senn í gæslunni.

Hvenær er barnagæslan opin?

Opnunartíma barnagæslunnar finnur þú á síðu hverrar stöðvar á worldclass.is. Gæslan er læst utan opnunartíma og börn geta því ekki leikið sér þar á öðrum tímum. Sé gæslan lokuð má nýta barnahorn á öðrum stöðvum.

Hvernig á barnið að koma í gæsluna?

Barnið á að koma þurrt, úthvílt og mett. Bleyjubörn þurfa að koma með hreina bleyju því starfsfólk skiptir ekki á börnum. Reynist það nauðsynlegt er foreldri kallað upp. Skiptiaðstaða er í gæslunni sjálfri eða í búningsklefa. Starfsfólk svæfir ekki börn. Þú mátt þó koma með sofandi barn og starfsfólk sinnir því ef það vaknar.

Mega börn borða eða drekka í barnagæslunni?

Nei. Börn mega hvorki koma með né neyta matar eða drykkjar á meðan á gæslu stendur.

Gilda barnagæslukortin á öllum stöðvum?

Já. Sama barnagæslukort gildir í öllum barnagæslum World Class.

Er gildistími á barnagæslukortum?

Nei. 15 og 30 skipta kortin eru án gildistíma.

Mega börnin koma með í sund?

Já. Greiða þarf fyrir börn 6 ára og eldri í afgreiðslu World Class þegar korthafar taka þau með í sund. Börn nota almenna búningsklefa, ekki Baðstofuklefa. Frítt er í sund fyrir börn í sundlaugum Reykjavíkur.

Má ég mæta í tíma með barninu?

Já. WorldFit Mömmur er tími fyrir verðandi og nýbakaðar mæður þar sem börnin eru velkomin með. Að auki eru reglulega í gangi námskeið þar sem börn mega koma með. Sjá námskeiðin.

Hvar er barnagæsla?

Sjá stöðvar með barnagæslu (https://www.worldclass.is/stodvar-og-sundlaugar?adstada=childcare) og stöðvar með barnahorni (https://www.worldclass.is/stodvar-og-sundlaugar?adstada=kids-corner). Opnunartími hverrar gæslu er á síðu stöðvarinnar.

Fyrir hvaða aldur er barnahornið?

Barnahornið er ætlað eldri börnum sem hægt er að skilja eftir ein án eftirlits í skamman tíma á meðan þú æfir. Þar eru leikföng og sjónvarp. Barnahornið er ómannað og hentar ekki ungum börnum sem þurfa gæslu.

Hver ber ábyrgð á börnunum í barnahorni?

Foreldrar. Barnahornið er ómannað og viðskiptavinir bera alla ábyrgð á sínum börnum og gjörðum þeirra. Leikföng og sjónvarp eru til afnota svo lengi sem gengið er vel frá eftir börnin.

Kostar að nota barnahornið?

Nei. Aðgangur að barnahorni er korthöfum World Class að kostnaðarlausu. Athugið að barnahorn er ómannað og börn eru á ábyrgð foreldra.

Hvenær er barnahornið opið?

Á sama tíma og stöðin sjálf. Barnahornið er opið allan opnunartíma stöðvarinnar.

Mega börnin borða og drekka í barnahorni?

Nei. Matur og drykkir eru ekki leyfðir í barnahorni.

Eru líkamsmælingar í boði?

Já. Þú færð upplýsingar í afgreiðslu um þá einkaþjálfara sem sjá um líkamsmælingar.

Hvar greiði ég fyrir einkaþjálfun?

Allar greiðslur fyrir einkaþjálfun fara í gegnum einkaþjálfarann sjálfan.

Hvað er innifalið í einkaþjálfun?

Fitumæling, ummálsmæling, vigtun, matarráðgjöf, æfingaáætlun og gott aðhald. Hver einstaklingur hefur mismunandi þarfir og einkaþjálfarinn aðlagar æfingar að þeim.

Hvað kostar að læra á tækin?

Þjálfari í sal er innifalinn við kaup á korti. Sendu okkur póst á worldclass@worldclass.is til að bóka.

Hvað kostar einkaþjálfun?

Einkaþjálfarar gefa sjálfir upp verð.

Hvað margir geta verið saman hjá einkaþjálfara?

Einn til fjórir geta verið hjá einkaþjálfara á sama tíma.

Hvaða einkaþjálfarar eru á minni stöð?

Á einkaþjálfarasíðunni geturðu valið stöð og þá birtast aðeins þeir einkaþjálfarar sem þjálfa á þeirri stöð.

Hvernig finn ég einkaþjálfara?

Einkaþjálfarar starfa sem sjálfstæðir verktakar. Þú finnur lista yfir alla einkaþjálfara World Class á worldclass.is og getur haft samband beint við þann sem þér líst best á.

Þarf ég að vera korthafi?

Til að nýta einkaþjálfara World Class þarftu að vera með kort í World Class.

Get ég nýtt frístundastyrk fyrir skólakort?

Frístundastyrkur gildir fyrir öll eingreiðslukortin: Skólakort 3 mánuðir, 9 mánuðir og Ár. Hann gildir ekki fyrir Skólakort – Árssamning (greitt mánaðarlega), því sá samningur er tímabundinn áskriftarsamningur en ekki eingreiðsla.

Hvar fæ ég nánari upplýsingar?

Almennar upplýsingar um frístundastyrkinn færðu á næstu World Class stöð. Þarftu nánari upplýsingar? Sendu okkur póst á worldclass@worldclass.is.

Hvernig nota ég frístundastyrk?

Forráðamaður velur frístundastyrkinn í kaupferlinu á worldclass.is. Styrkurinn gildir aðeins fyrir kort eða námskeið sem eru að minnsta kosti 10 vikur.

Eru kort fyrirframgreidd?

Já. Þú greiðir fyrstu greiðsluna á kaupdegi og næsta greiðsla kemur í lok tímabilsins. Þannig eru kortin alltaf fyrirframgreidd.

Get ég borgað með kreditkorti eða af bankareikningi?

Já. Þú slærð inn debet- eða kreditkortanúmer í greiðsluferlinu.

Hvar finn ég kvittanir?

Þú sækir allar kvittanir inni á aðganginum þínum (https://www.abler.io/shop/user/invoices). Nánari leiðbeiningar (https://help.abler.io/is/support/solutions/articles/67000743140-saekja-kvittun-fyrir-stettarfelag) eru á hjálparsíðunni.

Hvernig skipti ég um greiðslukort?

Þú getur skipt um greiðslukort á samningnum hvenær sem er. Ítarlegar leiðbeiningar (https://help.abler.io/is/support/solutions/articles/67000720991-skipta-um-greidslukort-eda-greidsluleid) eru á hjálparsíðunni.

Hvernig virka ótímabundnir samningar?

Ótímabundnir samningar (mánaðarleg áskrift) eru með tveggja mánaða uppsagnarfresti. Þú getur sagt upp hvenær sem er og kortið helst virkt út uppsagnarfrestinn. Tímabundnir samningar (t.d. Árssamningur eða Skólakort – Árssamningur) eru aftur á móti óuppsegjanlegir og falla sjálfkrafa úr gildi á lokadegi tímabilsins. Nánari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag eru í skilmálunum okkar.

Eru biðlistar á opna tíma?

Já. Þú getur skráð þig á biðlista þegar tími er fullur. Þegar þú skráir þig á biðlistann birtist gulur gluggi þar sem þú getur skráð þig af honum aftur. Þú getur komist inn í tíma allt að 50 mínútum áður en hann hefst. Biðlistinn á einungis við þegar korthafar skrá sig í tíma á vefnum. Hann gildir ekki í afgreiðslu. Ef þú kemst ekki inn af biðlista geturðu komið í afgreiðsluna 5 mínútum fyrir tíma og spurt um laust pláss.

Eru tímar á rauðum dögum?

Öll kennsla fellur niður á rauðum dögum nema annað sé tekið sérstaklega fram.

Hvaða tímar eru í boði?

Yfir 500 opnir tímar eru í boði í viku hverri.

Hvernig virkar skammarkrókurinn?

Ef þú mætir ekki í bókaðan tíma og hefur ekki afskráð þig með réttum fyrirvara lendirðu í „skammarkróknum“ og getur ekki bókað þig í tíma næstu þrjá daga á eftir. Afbókanir þurfa að berast minnst 50 mínútum fyrir upphaf tímans. Mættu fyrir auglýstan tíma. Laus pláss eru gefin öðrum 5 mínútum áður en tíminn hefst.

Er fjölskylduafsláttur í boði?

Fjölskyldumeðlimir með sama lögheimili fá 5% fjölskylduafslátt af kortum.

Er frítt í sund?

Já. Korthafar World Class komast frítt í Laugardalslaug, Lágafellslaug í Mosfellsbæ, Sundhöll Selfoss, Sundlaug Hellu, Árbæjarlaug, Sundlaug Seltjarnarness, Sundlaug Akureyrar, Breiðholtslaug, Jaðarsbakkalaug á Akranesi og Sundlaug Vestmannaeyja.

Fylgja opnir tímar kortinu?

Já. Opnir hóptímar eru á tímatöflu og innifaldir í kortum og námskeiðum.

Fá korthafar afslátt af námskeiðum?

Já. Korthafar fá afslátt af námskeiðum ef kortið er í gildi á námskeiðstímanum. Án korts greiðirðu fullt gjald fyrir námskeið.

Get ég fryst kortið eða lagt það inn?

Nei. Við bjóðum ekki upp á að frysta kort eða leggja þau inn vegna fría eða ferðalaga. Ef annað á við, sendu okkur póst á worldclass@worldclass.is.

Hvað fylgir kortinu?

Öllum kortum fylgir aðgangur að öllum stöðvum World Class ásamt aðgangi að Laugardalslaug, Sundlaug Seltjarnarness, Lágafellslaug, Sundhöll Selfoss, Árbæjarlaug, Sundlaug Hellu, Sundlaug Akureyrar, Breiðholtslaug, Jaðarsbakkalaug á Akranesi og Sundlaug Vestmannaeyja. Korthafar hafa aðgang að öllum opnum hóptímum og fá afslátt af lokuðum námskeiðum. Baðstofukorthafar fá 10% afslátt af þjónustu snyrti- og nuddstofu Laugar Spa (gjafabréf eru undanskilin og afsláttur gildir ekki í vefverslun).

Hvernig segi ég upp kortinu mínu?

Ótímabundnum samningi, það er mánaðarlegri áskrift, segir þú upp sjálf eða sjálfur í Abler. Skráðu þig inn í Abler-appið eða á sportabler.com, opnaðu samninginn þinn hjá World Class og segðu honum upp þar. Ekki er tekið við uppsögn með öðrum hætti, til dæmis í síma, tölvupósti eða í afgreiðslu. Tímabundnum samningi er ekki hægt að segja upp. Hann gildir út umsaminn tíma. Mánaðargjöld eru ekki endurgreidd, óháð mætingu. Nánar í skilmálum undir Uppsögn.

Hvernig virka vinamiðar?

Heilsuræktarkorthafar fá tvo vinamiða í heilsuræktina í hverjum mánuði (aldurstakmark 13 ára). Baðstofukorthafar fá tvo vinamiða í Baðstofuna í hverjum mánuði (aldurstakmark 18 ára). Þegar þú nýtir vinamiða þarftu að mæta með vininn í afgreiðsluna. Vinamiðar gilda ekki í Ögurhvarfi, Dalshrauni eða Árbæjarlaug.

Hvernig virkar skólakort?

Skólakort er sérstakt kort fyrir nemendur í námi. Það kemur í tvenns konar útfærslum: • Skólakort – Árssamningur: tímabundinn samningur, greiddur mánaðarlega yfir 12 mánuði. Hann er óuppsegjanlegur og fellur sjálfkrafa úr gildi á lokadegi. • Skólakort – 3 mánuðir, 9 mánuðir og Ár: eingreiðslur sem greiðast í einu fyrirfram. Þær renna sjálfkrafa út á lokadegi. Engin uppsögn nauðsynleg. Undir 18 ára geta keypt skólakortið beint á worldclass.is/kaupa-kort. 18 ára og eldri þurfa að koma í afgreiðslu á næstu stöð World Class með staðfestingu á að vera í námi (t.d. nemendaskírteini eða staðfestingu frá skóla). Skólakort gildir aðeins fyrir heilsurækt, ekki fyrir Laugar Spa eða Baðstofuna.