Upphitun og teygjur
Öll íþróttaiðkun krefst upphitunar. Með upphitun er átt við líkamsæfingar sem eiga sér stað fyrir þjálfun eða keppni með það fyrir augum að auka afkastagetuna og fyrirbyggja meiðsl. Að gefa sér nokkrar mínútur til upphitunar í upphafi æfingar mun skila sér margfalt til baka. Æfingarnar verða mun skemmtilegri vegna þess að þú ræður betur við þær, þér er síður hætt við meiðslum og þú nærð betri árangri.
Upphitun:
- Veldur því að hiti eykst í þeim vöðvum sem reynt er á.
- Hraðar á mörgum efnaskiptaferlum.
- Léttir blóðrásina til muna og hraðar flutningum súrefnis þannig verulega, auk þess auðveldar upphitun einngi einnig rauðu blóðkorununm að losa súrefnið til vöðvafrumanna.
- Eykur teygjanleika vöðvanna.
Teygjur:
Teygjur koma í veg fyrir að bandvefur styttist sem mun leiða til vöðvastyttingar.
Að teygja er mjög mikilvægur hluti af góðri þjálfun. Með reglulegum teygjum verður þú liðugri og getur viðhaldið liðleikanum. Að vera liðugur, það að geta hreyft liðamót innan sinna marka, gefur vöðvunum frjálsa hreyfingu, án stífleika eða sársauka.
Þessi aukni möguleiki getur komið í veg fyrir meiðsli, eymsli í vöðvum eru í algjöru lágmarki og þetta gæti hugsanlega aukið getu þína í æfingum.
Til hvers að æfa liðleika?
Ef líkaminn er vel liðugur verða hreyfingarnar réttari og vinnan, sem hann innir af hendi, gengur hraðar og auðveldar fyrir sig. Góð hreyfing í liðamótum er grunnur góðrar líkamsstöðu og betri líkamsbeitingar. Ónotaðir liðir verða fljótt stífir og stirðir. Þegar á unga aldri geta einfaldar hreyfingar, s.s. skokk eða ganga, fengið á sig gamallegt yfirbragð ef liðleikann skortir. Liðleiki og fimi draga úr hættu á meisðlum, jafnt í vinnu sem og í íþróttum. Vöðvarnir verða þjálli og þola meiri teygju án þess að bíða tjón af. Síðast en ekki síst skapa góðar afslappaðar teygjur mikla slökun og vellíðan fyrir líkamann.
Hvernig á að þjálfa liðleika og hvenær
Vöðvateygjur ber að gera í allri þjálfun, en þó eftir upphitun og best er að enda allar sínar æfingar á því að teygja helstu vöðva líkamans. Vöðvar og liðir verða að vera heitir. Kaldir vöðvar eru stirðir og stífir. Vöðvarnir eiga að vera eins afslappaðir og mögulegt er. Veitið líkamanum stuðning þegar teygjuæfingar eru gerðar. Byrja skal á því að teygja á stærri vöðvum og í framhaldi af þeim skal teygja á smærri vöðvum. Halda skal hverri teygju í 20-30 sek. (lengur þegar teygt er eftir átök). Munið að anda djúpt og hugsa um að slaka á vöðvanum sem teygt er á. Mikilvægt er að varast að rykkja þegar teygt er.
Copyright GMS - World Class 2004