World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

 

Kaloríur

Hvernig þú getur ”ekki neytt þeirra”

10 frábær ráð til þess að sleppa því allra feitasta úr mataræðinu þínu. Lífið býður okkur endalaust upp á að velja. Hér færðu hugmyndir að hollari kost frá því sem þú ert kannski að velja þér í dag. Við erum ekki að ætlast til þess að þú nýtir þér alla þessa valkosti á einu bretti en hér sérðu það hversu margar kaloríur þú getur verið að sleppa daglega og nú geturðu byrjað að breyta rétt og neyta færri kaloría, skref-fyrir-skref


Slepptu smjérinu!

Það munar miklu hvort þú færða þér rjómaost ( 50 kal per 2 teskeiðar ) eða smjör

( 100 kal per 2 teskeiðar ) eða léttsmurost ( 25 kal per 2 teskeiðar ) Veldu rétt álegg!

 

Slepptu dressingunni!

Tvær matskeiðar af “týpískri” dressingu sem við setjum út á salatið okkar er

135 – 155 kaloríur. Ef þú færð þér fitulausa dressingu ertu að fá aðeins

30 – 50 kaloríur í sama skammti.

 

Slepptu vínarbrauðinu!

Eitt stykki venjulegt vínarbrauð er meira en 450 kaloríur!! Kleinuhringur er yfir

250 kaloríur og kleina er yfir 300 kaloríur.

 

Slepptu ídýfunni!

¼ dós af ídýfu er yfir 250 kaloríur með venjulegum flögum. Ef þú færð þér fituskertar flögur og salsa í staðinn ertu að fá helmingi færri kaloríur eða 125.

 

Slepptu frönskunum!

Ef þú færð þér aðeins 20 franskar sem myndi teljast lítill skammtur þá ertu að fá yfir 280 kaloríur. Slepptu þeim og fáðu þér frekar bakaða kartöflu, aðeins 145 kaloríur

 

Slepptu rjómalöguðu súpunni!

Í stað þess að fá þér kjúklingasúpu upp úr dós ( 116 kaloríur í einum skammti ) fáðu þér þá frekar kjúklingasoðsúpu ( 13 kaloríur í einum skammti )

 

Slepptu “ einni með öllu “

Fáðu þér frekar “létt” pylsur ( 40 kaloríur stykkið ) á grillið næsta sumar í stað þessara venjulegu ( 142 til 180 kaloríur per stykki )

 

Slepptu Súkkulaðistykkinu!

Eitt venjulegt súkkulaðistykki er yfir 220 kaloríur. Slepptu því og fáðu þér frekar hlaup eins og jelly beans 10 stk eða brjóstsykur 5 stk og sparaðu þér 110 kaloríur.

Slepptu húðinni á kjúklingnum! Eftir að þú hefur steikt hann. Munar yfir 100 kaloríur miðað við hálfan kjúkling.

Slepptu Beikoninu! Í stað þess að fá þér venjulegt beikon með eggjunum skaltu prófa að fá þér magurt beikon eða lúxus beikon. 4 sneiðar af venjulegu Beikoni innihalda 160 kaloríur en 4 af mögru innihalda einungis 70 kaloríur.

 

 

 

GMS - WORLD CLASS 2004©


Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe