Grænmetis-pastasósa
2 stk Laukur
2 stk Hvítlauksrif
4-6 stk Gulrætur
1 lítill Kúrbítur
1 lítið Eggaldin
1 rauð Paprika
1 dós Niðursoðnir tómatar
3 dl Baunir; nýrnabaunir, kjúklingabaunir, linsur
1 msk Ólífuolía, rapsolía eða ISIO-4 olía
- Oregano
- Timjan
- Hvítur pipar
- Salt (notist í hófi)
Skerið grænmetið í hæfilega stóra bita og pressið hvítlaukinn. Hitið olíuna á pönnu. Léttsteikið laukinn og hvítlaukinn þar til laukurinn er glær. Bætið gulrótunum út í og að lokum afgangnum af grænmetinu ásamt tómötunum og kyddinu. Smakkið til með kryddinu. Baununum er bætt út í allra síðast og allt hitað í um það bil 15 mínútur eða þar til grænmetið og baunirnar er gegn heitt. Gætið þess að rétturinn sjóði ekki of lengi. Sósan er borin fram með pasta/heilhveitipasta, hrísgjónum eða grófu brauði og fersku salati.
Verði þér að góðu – Kveðja World Class