Súrsætur fiskur
Uppskrift fyrir tvo:
- 150 gr. ýsa eða annar fiskur
- 1 krukka Amoy Sweet and Sour sósa
- Nokkrir ananasbitar
- Olía til steikingar
Soppa:
- 1 eggjahvíta
- 1 dl. maísenamjöl
- 1 dl. hveiti
- 1 dl. vatn
Beinhreinsið fiskinn og skerið í bita.
Útbúið soppuna:
Þeytið eggjahvítuna þar til hún verður hvít og létt. Bætið vatni út í og þeytið. Þeytið maísenamjölinu næst saman við og síðast hveitinu.
Setjið fiskinn út í soppuna og djúpsteikið í heitri olíu þar til fiskurinn fær
gullbrúnan lit. Fjarlægið og setjið á grind svo að olían renni af. Hitið 1 msk. af olíu, bætið út í súrsætu sósunni og látið krauma. Setjið loks fiskinn og ananasbitana út í sósuna og hrærið saman. Berið fram vel heitt.
Verði þér að góðu – Kveðja World Class