Fiskur í Kókossósu
Uppskrift fyrir sex til átta:
- 1 kg. ýsuflök eða þorskflök (frekar þykk)
- 1 msk. Patak´s Vindaloo Curry Paste
- 300 ml. kókosmjólk, t.d. frá Amoy
- 3 meðalstórir tómatar saxaðir
- 3 meðalstórir laukar saxaðir
- 1 msk. hveiti
- 3 msk. olía
Hitið olíuna og steikið laukinn. Blandið saman
hveitinu og kókosmjólkinni og setjið það svo
smám saman út í laukinn. Bætið svo tómötunum
og Patak´s Vindaloo kryddmaukinu út í.
Þegar sósan fer að sjóða, lækkið hitann og setjið
fiskinn út í og eldið í 10 mínútur eða
þangað til að fiskurinn er tilbúinn.
Berið fram heitt ásamt hrísgrjónum.
Verði þér að góðu – Kveðja World Class