World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

Grænmetis fiskréttur í ofni

500 g  Ýsa, þorskur, rauðspretta

2 msk Sítrónusafi

400 g  Kartöflur

1-2 stk Græn paprika

1 stk   Laukur

2 stk   Hvítlauksrif

1 dós Niðursoðnir tómatar

1 tsk   Grænmetiskraftur

½ tsk Hvítur pipar

½ tsk Salt

1 tsk   Basilikum

40 g    Ostur 17%

 

Skolið fiskflökin, þerrið og bleytið með sítrónusafa. Skrælið kartöflurnar og skerið í sneiðar. Skerið paprikuna í strimla og laukinn í fremur þunnar sneiðar. Pressið hvítlaukinn og hrærið honum saman við tómatana ásamt grænmetiskraftinum og kryddinu. Kartöflurnar, laukurinn og paprikan er sett í eldfast mót og tómasósunni hellt jafnt yfir. Setjið lok eða álpappír yfir mótið. Stillið ofn á 220°C og setjið mótið neðst í kaldan ofninn.

Þerrið fiskflökin aftur og krydduð með saltinu og piparnum. Bakið grænmetið í um það bil 30 mínútur en leggið þá fiskflökin ofan á, stráið rifnum osti yfir og bakið áfram í 40-45 mínútur. Borið fram t.d. með couscous, hrígrjónum eða brauði og fersku salati

 

 

Verði þér að góðu – Kveðja World Class


Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe