Grillaður fiskur með Heilsusósu
Uppskrift fyrir tvo:
400 - 450 gr. fiskur að eigin vali
Marinering:
4 msk. kóríander
2 msk. hvítlaukur, niðurskorinn
1 tsk. nýmalaður svartur pipar
Sósa:
3 msk. sítrónusafi
1 msk. hvítlaukur, niðurskorinn
1 msk. jalapeno chilli pipar, niðurskorinn
2 tsk. sykur ( má vera hunang )
Setjið kóríanderinn, hvítlaukinn og piparinn í blandara. Hrærið vel saman. Þekjið fiskinn með maukinu. Vefjið álpappír utan um fiskinn og grillið í ca. 5 til 6 mín. á hverri hlið, eða þar til hann er tilbúinn.
Á meðan fiskurinn er á grillinu, útbúið sósuna.
Setjið sítrónusafann, hvítlaukinn, jalapeno og sykurinn í blandara og hrærið vel saman. Setjið sósuna í skál og berið fram með fiskinum. Einnig er gott að bjóða upp á grænt salat með.
Þetta er mjög einföld aðferð til að útbúa gómsætan fiskrétt. Samkvæmt hefðinni ætti að vefja fisknum inn í laufblöð af bananatré, og glóðarsteikja síðan við opinn eld. Við verðum hins vegar að láta okkur nægja nútímalegri aðferðina, álpappír og grill.
Verði ykkur að góðu - Kveðja World Class